Bíó og sjónvarp

Keanu Reeves sýnir ótrúlega takta á æfingasvæðinu: Undirbýr sig fyrir John Wick 2

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikarinn Keanu Reeves er núna að fullu að undirbúa sig fyrir næstu myndina um John Wick og má sjá myndband af kappanum á æfingarsvæði með skotvopn.

Þar fer Keanu mikinn og kann greinilega að meðhöndla skotvopn eins og fagmaður. John Wick kom út árið 2014 og þá leikur Keanu mann sem var áður leigumorðingi og lendir hann í miklum vandræðum við rússnesku mafíuna.

Myndin var nokkuð vinsæl og nú er Keanu að undirbúa sig undir framhaldið sem kemur út á þessu ári. Hér að neðan má sjá hvernig hann undirbýr sig og hversu langt menn fara í þeim undirbúningi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×