Nilli í fyrsta skipti á hvíta tjaldinu Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 5. mars 2016 00:01 Nilli í hlutverki Diðriks, en hann er kvikmyndanörd. „
Það vildi svo skemmtilega til að ég fékk lítið hlutverk í myndinni, ég leik Diðrik en honum bregður fyrir nokkrum sinnum og fær meira að segja nokkrar línur, Diðrik er kvikmyndanörd og fastagestur í verslun aðalhetjunnar, Hrings, sem er leikinn af Atla Rafni Sigurðssyni,“ segir Nilli stoltur og bætir við að þetta sé lífsreynsla fyrir lífstíð og að hann geti búið að þessari reynslu alla ævi. Reykjavík er dramatísk kómedía um sambönd og samskipti og gerist í samtímanum. Þetta mun vera frumraun Nilla á hvíta tjaldinu. Þó að hann hafi verið með hlutverk í myndinni var hann í upprunalega ráðinn til þess að sjá um leikmuni en starf hans þróaðist heldur betur, þar sem hann sá alfarið um leikmyndina. „Ég annaðist leikmyndina, en ég mundi ekki kalla mig leikmyndahönnuð, ef ég gerði það þá yrði það móðgun við leikmyndahönnuði í kvikmyndaiðnaði þessa lands. Ég reisti vídeóbúð á Óðinstorgi og kom heilli íbúð fyrir á Leifsgötu á fimmtu hæð, þar sem engin lyfta var. Ég er ekki frá því að ég hafi lést um heil sjö kíló. Framleiðandi myndarinnar, Sölmundur Ísak, Daníel Gylfason, Haraldur, Dagur og kærasta mín, hún Maríanna, hjálpuðu mér mjög mikið,“ segir Nilli aðspurður hvort hann sé leikmyndahönnuður fyrir kvikmyndina Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson.Nilli, begður fyrir í kvikmyndinni Reykjavík sem frumsýnd verður í lok næstu viku. fréttablaðið/Anton„Margt af því sem við sjáum í myndinni er reist leikmynd, og það setti ég upp ásamt kærustinni minni, Maríönnu Rún Kristjánsdóttur, og góðum RÚV-urum, meðal annars Sigga Óla sem var okkar helsti klettur í framkvæmdunum. Maríanna mín keyrði mig svo út um allan bæ til að sanka að mér alls konar hlutum til að nýta í myndina, það var ómetanlegur stuðningur því án hennar hefði mér ekki tekist þetta,“ segir Nilli sem er fullur þakklætis fyrir að eiga góða að. Í dag starfar Nilli sem sem sýningarstjóri hjá Íslensku óperunni í Hörpu og líkar það mjög vel. „Það er mjög gaman að vinna með Íslensku óperunni, en um þessar mundir er óperan að sýna verkið Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart sem er að vekja mikla lukku hjá áhorfendum,“ segir Nilli.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Ásgrímur fer með Reykjavík til Gautaborgar Ásgrími Sverrissyni kvikmyndaleikstjóra hefur verið boðið að kynna kvikmynd sína Reykjavík fyrir söluaðilum og hátíðum á kaupstefnu kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, sem hefst 29. janúar. 21. janúar 2016 16:30 Þetta er allt gert með hjartanu Atli Rafn Sigurðarson leikur aðalhlutverkið í nýjustu mynd Ásgríms Sverrissonar, Reykjavík sem frumsýnd verður 11. Mars næstkomandi. Ásgrímur er um þessar mundir á kvikmyndahátíð í Gautaborg þar sem hann kynnir myndina. 29. janúar 2016 09:30 Mest lesið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Merzedes Club snýr aftur Lífið Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira
Ásgrímur fer með Reykjavík til Gautaborgar Ásgrími Sverrissyni kvikmyndaleikstjóra hefur verið boðið að kynna kvikmynd sína Reykjavík fyrir söluaðilum og hátíðum á kaupstefnu kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, sem hefst 29. janúar. 21. janúar 2016 16:30
Þetta er allt gert með hjartanu Atli Rafn Sigurðarson leikur aðalhlutverkið í nýjustu mynd Ásgríms Sverrissonar, Reykjavík sem frumsýnd verður 11. Mars næstkomandi. Ásgrímur er um þessar mundir á kvikmyndahátíð í Gautaborg þar sem hann kynnir myndina. 29. janúar 2016 09:30