Fótbolti

Fjórir stubbar í varnarlínu Bayern í kvöld?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Alaba.
David Alaba. Vísir/Getty
Hún verður væntanlega ekki hávaxin varnarlínan hjá Bayern München þegar þýska liðið heimsækir Juventus á Juventus-leikvanginn í Torinó í kvöld.

Allir miðverðir Bayern München eru meiddir og því þarf Pep Guardiola að endurskipuleggja öftustu línu liðsins fyrir þennan mikilvæga leik.

Jerome Boateng meiddist strax í fyrsta leik eftir vetrarfríið og hin óheppni Holger Badstuber meiddist illa á æfingu á dögunum.

Medhi Benatia og Javier Martinez eru líka að ná sér eftir vöðvatognanir. Bayern fékk Serdar Tasci á láni frá Spartak Moskvu í byrjun febrúar en hann er ekki í mikilli leikæfingu og því ólíklegur kostur fyrir svona stóran leik.

Það bendir allt til þess að Pep Guardiola tefli fram óvenju lávaxnari varnarlínu í leiknum. Þar verða væntanlega þeir Philipp Lahm (170 sentímetrar), Joshua Kimmich (176 sm), David Alaba (180 sm) og Juan Bernat (170 sm).

Joshua Kimmich er 21 árs gamall og mjög efnilegur miðvörður. Austurríkismaðurinn David Alaba getur spilað allstaðar á vellinum en hann er oftast vinstri bakvörður.  Þeir verða líklegast saman í miðri vörninni.

Þessar tölur fara kannski fyrst að þýða eitthvað þegar hæð sóknarmanna Juventus-liðsins er skoðuð. Hinn 190 sentímetra hái Alvaro Morata og hinn 187 sentímetra hái Mario Mandzukic ættu nefnilega að vinna flesta skallabolta í kvöld.

Fari svo að enginn varnarmanna Bayern verði yfir 180 sentímetra í leiknum er hætt við því að Juventus leggi ofurkapp á fyrirgjafir á þá Morata og Mandzukic.

Mario Mandzukic er kominn til baka eftir meiðsli og örugglega ekki búinn að gleyma því að Pep Guardiola lét hann fara frá Bayern.

Leikur Juventus og Bayern München í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar hefst klukkan 19.45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×