Messi sá um Arsenal | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. febrúar 2016 21:30 Messi fagnar ásamt félögum sínum. Vísir/Getty
Barcelona er í afar sterkri stöðu eftir 2-0 sigur á Arsenal í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik tók Lionel Messi leikinn yfir. Hann kom Börsungum yfir eftir frábæra skyndisókn á 71. mínútu og innsiglaði svo sigurinn tólf mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Arsenal hafði fengið færi til að skora í leiknum en bæði Alex Oxlade-Chamberlain og Olivier Giroud náðu ekki að skora úr sínum færum. Petr Cech varði frá Neymar en hann kom engum vörnum við eftir hraða skyndisókn Börsunga. Neymar og Luis Suarez báru boltann upp og komu honum á Messi sem skoraði af yfirvegun í teignum. Þetta var í fyrsta sinn sem Lionel Messi náði að skora gegn Petr Cech í sjö tilraunum en hann gerði það svo öðru sinni er hann skoraði úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir að varamaðurinn Mathieu Flamini braut á Messi. Síðari leikurinn fer fram á Nou Camp þann 16. mars.Lionel Messi kom Barcelona yfir á 71. mínútu: Lionel Messi jók forystuna í 2-0 á 84. mínútu:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Sjá meira