Matur

Æðislegur lax í sítrónu- og smjörsósu

Eva Laufey skrifar
Þegar laxinn er tilbúinn færið þið hann á disk og leggið salsa yfir.
Þegar laxinn er tilbúinn færið þið hann á disk og leggið salsa yfir. vísir/eva laufey

Í síðasta þætti af Matargeði Evu lagði ég sérstaka áherslu á sjávarfang og eldaði meðal annars þennan gómsæta lax í sítrónu- og smjörsósu.

Ofnbakaður lax í sítrónu- og smjörsósu

800 g beinhreinsað laxaflak með roði

Salt og pipar

1 sítróna

5-6 msk smjör

Ólífuolía

1 askja kirsuberjatómatar

1 stór tómatur

1 rauðlaukur

Balsmikgljái

Ólífuolía

Handfylli basilíka

Salt og nýmalaður pipar



Aðferð:
Leggið laxaflakið í eldfast mót, kryddið til með salti, pipar og nýrifnum sítrónuberki.

Sáldrið ólífuolíu yfir og smjöri. Bakið við 180°C í 10-12 mínútur.

Á meðan fiskurinn er í ofninum útbúið þið einfalt tómatasalat.

Skerið kirsuberjatómata, rauðlauk og saxið basilíkuna mjög smátt. Blandið öllum hráefnum saman í skál og kryddið til með salti og pipar. Hellið ólífuolíu og balsamikgljáa yfir, leyfið salsainu að standa inn í kæli áður en þið berið það fram með laxinum.

Þegar laxinn er tilbúinn færið þið hann á disk og leggið salsa yfir. Berið strax fram og njótið vel.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.