Bíó og sjónvarp

Atli Óskar útnefndur rísandi stjarna á Berlinale

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Atli Óskar Fjalarsson tekur á móti verðlaunum sínum á hátíðinni.
Atli Óskar Fjalarsson tekur á móti verðlaunum sínum á hátíðinni. vísir/getty
Atli Óskar Fjalarsson var einn tíu leikara sem útnefndur var rísandi stjarna á Berlinale kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir. Atli var ekki eini Íslendingurinn sem var heiðraður því Jóhann Jóhannsson var heiðraður fyrir framlag sitt til kvikmyndatónlistar og tónskáldið Atli Övarsson hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatónlist. Þá hlaut Nanna Kristín Magnúsdóttir verðlaun sem besta leikkonan valin af kvikmyndatökumönnum.

Evrópsku kvikmyndakynningarsamtökin EFP heiðra tíu leikara ár hvert með því að útnefna þá rísandi stjörnur og í ár var Atli Óskar einn þeirra tíu sem hlaut útnefningu. Atli átti stórleik í kvikmyndinni Þröstum eftir Rúnar Rúnarsson. Þetta er annað árið í röð sem Íslendingur hlýtur náð fyrir augum dómnefndarinnar en í fyrra var Hera Hilmarsdóttir meðal þeirra tíu sem hlutu viðurkenningu

Atli Örvarsson hlaut verðlaun sín fyrir tónlist sem hann samdi fyrir Hrúta, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, en myndin hefur farið sigurför um heiminn. Hann hefur meðal annars starfað með Hans Zimmer en fluttist nýverið til Akureyrar og starfar þaðan.

Samtök norrænna kvikmyndatónskálda stóðu fyrir veitingu Hörpu verðlaunanna á hátíðinni. Þeim var komið á laggirnar árið 2009 með það að markmiði að beina kastljósinu að norrænum hæfileikum og að kynna norrænt hæfileikafólk á sviði kvikmyndatónlistar og leiklistar fyrir alþjóðlega kvikmyndageiranum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×