Skoðun

Enn sótt að rammaáætlun

Svandís Svavarsdóttir skrifar
Ráðuneyti umhverfismála, sem ætti með réttu að standa vörð um náttúruvernd, leggur nú til breytingar á regluumhverfi rammaáætlunar í því skyni að draga úr vernd og auka ágang á náttúru landsins. Líkur benda til þess að ráðuneytið sé undir þrýstingi orkufyrirtækja nema það eigi frumkvæði að því að draga úr vægi verndarsjónarmiða sem stangast þvert á við yfirlýst hlutverk þess.

Á síðasta kjörtímabili var lokið við afgreiðslu rammaáætlunar tvö og í þeirri afgreiðslu var Norðlingaölduveita sett í verndarflokk enda um framhald stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum að ræða. Það er mörgum enn í fersku minni þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi umhverfisráðherra, boðaði veisluhöld út af undirritun um stækkunina en blés hana svo af á síðustu stundu. Þetta var sumarið 2013, undirbúningi var lokið af hálfu Umhverfisstofnunar og ráðuneytisins og langþráður áfangi í höfn. Veislan hefur enn ekki verið haldin og svæðið enn ekki verið friðlýst.

Kippt í spotta

Landsvirkjun hafði þá greinilega kippt í spotta, iðnaðarráðherrann lýsti sinni skoðun og ljóst var hvar völdin liggja. Kynnt var til sögunnar ný virkjun, ný veita, Kjalölduveita sem var nýtt heiti á sama stað, með nýjum útlínum. Sumir kölluðu þetta totutillöguna. Klæðskerasniðið fyrir Landsvirkjun.

Nokkrar atlögur að rammaáætlun á Alþingi, flestar að frumkvæði Jóns Gunnarssonar, hafa verið brotnar á bak aftur á Alþingi á þessu kjörtímabili og var það trú manna að verkefnisstjórnin fengi nú að vera í friði. Ráðherrann, Sigrún Magnúsdóttir, mælti með því að hún fengi að ljúka sinni vinnu, sagðist standa vörð um ferlið.

Nú, þegar nálgast endastöð rammaáætlunar þrjú, sem hefur staðið yfir allt frá vorinu 2013 bregður svo við að ráðherrann sjálfur leggur til breytingar á starfsreglum verkefnisstjórnarinnar. Breytingarnar fela m.a. í sér að hægt verður að taka svæði sem Alþingi hefur samþykkt að vernda og setja þau í nýtingarflokk.

Gegn lögunum

Það má ljóst vera að breytingarnar fara gegn lögunum, markmiðum þeirra og verklagi. Enn er full þörf á að standa vörð um rammaáætlun og náttúruvernd í landinu. Umhverfisráðherra stendur ekki þá vakt.




Skoðun

Sjá meira


×