Bíó og sjónvarp

Framleiðsla Guardians of the Galaxy 2 hafin

Samúel Karl Ólason skrifar
Rocket, Dax, Groot, Star-Lord og Gamora.
Rocket, Dax, Groot, Star-Lord og Gamora. Mynd/Marvel Studios
Framleiðsla kvikmyndarinnar Guardians of the Galaxay 2 er hafin. Marvel Studios tilkynntu í dag að tökur væru hafnar í Atlanta í Bandaríkjunum, en til stendur að frumsýna myndina þann 5. maí á næsta ári.

Með tilkynningunni birti Marvel mynd af þeim Star-LordGamoraDraxRocket og Groot. Athygli vekur að Groot er einstaklega smár á myndinni, en í lok fyrri myndarinnar var hann einungis lítil grein.

Í nýju myndinni munu hetjurnar reyna að ráða gátuna um faðir Star-Lord, eða Peter Quill. David Gunn mun leikstýra myndinni eins og þeirri fyrri, sem halaði inn rúmum 770 milljónum dala, eða um 99 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×