Snæfellskonur unnu generalprufuna fyrir bikarúrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2016 20:57 Haiden Denise Palmer. Vísir/Stefán
Snæfell er áfram á toppi Domino´s deildar kvenna í körfubolta eftir sex stiga heimasigur á Grindavík, 75-69, í Stykkishólmi í kvöld. Snæfellskonur hafa þar með unnið sjö síðustu deildarleiki sína og alla níu deildarleiki sína í Hólminum í vetur. Þetta var jafnframt generalprufa fyrir bikarúrslitaleikinn eftir tíu daga því þar munu liðin mætast í Laugardalshöllinni. Haiden Denise Palmer var stigahæst í Snæfellsliðinu en hún skoraði 20 af 29 stigum sínum í fyrri hálfleiknum og skoraði 20 stigum meira en næststighæsti leikmaður Snæfells. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir skoruðu báðar 9 stig í þessum leik. Snæfellskonur voru komnar 17 stigum yfir þegar átta mínútur voru eftir en Grindavíkurkonur minntu á sig og minnkuðu muninn í lokin. Whitney Michelle Frazier átti flottan leik hjá Grindavík og var með 28 stig og 17 fráköst en systurnar Petrúnella og Hrund Skúladætur skoruðu báðar tíu stig. Snæfell byrjaði vel, komst í 8-2 og 12-6 en gestirnir úr Grindavík náðu þá fínum spretti og komust í 15-12. Grindavík var 19-17 yfir tvær og hálf mínúta var eftir af fyrsta leikhlutanum en Snæfellskonu enduðu leikhlutann á 7-0 spretti og vann fyrsta leikhlutann því 24-19. Snæfellsliðið var síðan komið með tíu stiga forskot í hálfleik, 43-33 en Haiden Denise Palmer skoraði 20 stig í fyrri hálfleiknum. Snæfell var þrettán stigum yfir eftir þriðja leikhluta, 56-43, og komst síðan sautján stigum yfir, 64-47, þegar átta mínútur voru eftir af leiknum. Grindavikurliðið gafst ekki upp og minnkað muninn niður í sex stig en nær komust þær ekki og Snæfell fagnaði sigri.Snæfell-Grindavík 75-69 (24-19, 19-14, 13-10, 19-26)Snæfell: Haiden Denise Palmer 29/12 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9/6 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/4 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 7, Berglind Gunnarsdóttir 6/4 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 5, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4/5 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 3, María Björnsdóttir 3..Grindavík: Whitney Michelle Frazier 28/17 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 10, Hrund Skuladóttir 10/4 fráköst, Íris Sverrisdóttir 8/4 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 7/11 fráköst/8 stoðsendingar, Ingibjörg Jakobsdóttir 3/5 stoðsendingar, Björg Guðrún Einarsdóttir 3.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Sjáðu ótrúlega vörslu Raya og öll mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira