Busquets: Guardiola gæti fengið mig til að yfirgefa Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. febrúar 2016 17:45 Bosquets er með samning við Barcelona til ársins 2019. vísir/getty
Spænski miðjumaðurinn Sergio Busquets segir að einungis tvær manneskjur gætu fengið hann til að fara frá Barcelona; konan hans og Pep Guardiola.Guardiola tekur sem kunnugt er við Manchester City í sumar en Busquets á honum mikið að þakka. Guardiola þjálfaði Busquets fyrst hjá B-liði Barcelona og tók hann svo inn í aðallið félagsins tímabilið 2008-09. „Það eru aðeins aðeins tvær manneskjur sem gætu fengið mig til að yfirgefa Barcelona,“ sagði Busquets. „Önnur þeirra er konan mín og hún er ánægð hérna. Hin er Guardiola. Það er ljóst að ég á honum mikið að þakka og það yrði heiður að vinna með honum á ný,“ bætti Busquets við en hann segir að það þurfi mikið að gerast til að hann yfirgefi uppeldisfélagið. „En Guardiola veit að Barcelona er félagið mitt, og það er hans félag líka. Hann veit að það er best fyrir mig og félagið að ég verði áfram og ég held að hann muni ekki biðja mig um að yfirgefa Barcelona fyrir Man City.“ Busquets, sem er 27 ára, hefur verið fastamaður hjá Barcelona á undanförnum árum og unnið fjölda titla með liðinu. „Ég vona að þegar ég legg skóna á hilluna verði mín minnst sem frábærs liðsmanns sem vann titla. Ég vil vera einn af leikjahæstu leikmönnum í sögu Barcelona,“ sagði Busquets ennfremur.
Spænski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira