Menning

Boðið að syngja í japönsku sjónvarpi fyrir 10 milljón áhorfendur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þátturinn verður sýndur í næsta mánuði á sjónvarpsstöðinni NHK.
Þátturinn verður sýndur í næsta mánuði á sjónvarpsstöðinni NHK.
Tökulið fyrir japönsku sjónvarpsstöðina NHK, japanska ríkissjónvarpið, hefur beðið Bergljótu Arnalds að flytja lag sem hún hefur samið við bæn álfkonunnar Tamínu. Þeir komu sérstaklega hingað til lands til að taka upp efni og töluðu kvikmyndagerðamennirnir aðeins japönsku. Voru þeir með breskan túlk með sér og þýddi hann allt sem leikstjórinn sagði yfir á ensku fyrir leikkonuna. Áætlað er að þátturinn nái til allt að 10 milljón áhorfenda.

Fyrstu tökur áttu sér stað i Krísuvíkurhrauninu rétt fyrir áramótin og þá var 7 stiga frost. Fékk Bergljót lánaðan útbúnað frá Fjallakofanum, þar á meðal sérhannaðar buxur sem hægt er að nota í 4000 metra hæð og eiga að þola fimbulkulda.

Þátturinn verður sýndur í næsta mánuði á sjónvarpsstöðinni NHK og verður meðal annars fjallað um hvernig Íslendingar fagna áramótum og um starfsemi íslensku Björgunarsveitanna. Leikstjóra þáttarins fannst tónlist Bergljótar og ljóð álfkonunnar falla vel við þáttinn og var leikkonan því fengin í verkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.