Peð nýkomið af geðdeild sem höfuðpaurar fórnuðu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. janúar 2016 12:14 Atli Freyr var viðstaddur málflutning í Hæstarétti í morgun. Vísir/Stefán
Bjarni Hauksson, nýskipaður verjandi Atla Freys Fjölnissonar í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð sem miður fór við Hótel Frón, telur fulla ástæðu til þess að milda dóm skjólstæðings síns. Atli Freyr veitti meintum fíkniefnum viðtöku utan við fyrrnefnd hótel á Laugaveginum þann 7. apríl í fyrra og hlaut fimm ára dóm í héraði fyrir sinn þátt. Verjandi hans telur að þáttur ákærða hafi verið svo takmarkaður að eðlilega væri að hann hlyti tveggja ára dóm í Hæstarétti. Málflutningur fór fram í morgun. Dómar í málinu í héraði voru afar þungir og var litið til þess hve mikið magn fíkniefna um ræðir. Í tveimur ferðatöskum sem hollenskar mæður fluttu til landsins fundust níu kíló af mjög sterku amfetamíni og tíu kíló af MDMA auk 200 gramma af kókaíni. Úr amfetamíninu hefði mátt framleiða 42 kíló af amfetamíni með 5,8% styrk sem er nærri algengum styrk efna sem eru í sölu hér á landi. Götuvirði efnanna sem um ræðir nemur fleiri hundruð milljónum króna sé miðað við tölur SÁÁ.Tálbeituaðgerð lögreglu fór fram við Hótel Frón, Laugavegi.Vísir/StefánTelur héraðsdóms hafa rangtúlkað orð sérsveitarmanns Bjarni gagnrýndi dóminn í héraði þar sem fram kom að Atli Freyr hefði látið sér „í léttu rúmi liggja“ hvaða efni hann átti að flytja og í hvaða magni. Nær væri að ákvörðun hans að veita töskum viðtöku sýndi fram á gáleysi hans og hve illa hann var staddur. Þá gerði hann athugasemd við niðurstöðu héraðsdóms þar sem haft var eftir sérsveitarmanni að ekkert hefði bent til þess að Atli Freyr hefði verið undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Vísaði hann í svör sérsveitarmanns við spurningu verjanda í héraði hvort Atli Freyr hefði verið undir áhrifum, eða hvort hann hefði nokkuð tekið eftir því? Svar sérsveitarmannsins hefði verið orðrétt: „Ég tók nú ekki eftir því.“ Sérsveitarmaðurinn lýsti því hvernig Atla Frey hefði brugðið við handtökuna, náfölnað og verið smeykur. Var það mat verjandans að svör sérsveitarmannsins hafi ekki lýst ástandi Atla Freys, að hann hafi ekki verið undir áhrifum, heldur þess heldur að hann hefði bara ekki veitt því athygli. Enda væri ekki hlutverk sérsveitarmanna að leggja mat á slíkt. Þeir væru að tryggja aðstæður á vettvangi og fylgja skipendum. Væru ekki hluti af rannsóknarteyminu sem pældi í hlutum sem þessum. Þá gagnrýndi hann niðurstöðu héraðsdóms að svör hans fyrir dómi, um að hann hefði talið sig vera að veita sterum viðtöku, væru eftir á skýring. Það hafi einfaldlega verið í fyrsta skipti sem hann var spurður hvað hann hefði talið sig vera að flytja. Svar hans fyrir dómi hefði verið afdráttarlaust. Saksóknari hafði hins vegar orð á því að í ljósi þess að sterar væru ekki ólöglegir væri í hæsta máta óeðlilegt að Atla Frey hefði verið falinn sérstakur sími til þess að nota í samskiptum í tengslum við málið. Amfetamínbasinn sem Elena Neuman flutti inn og framleiða mátti rúmlega 150 kíló af amfetamíni úr til sölu.Fordæmi kalli á vægari refsingu Bjarni sagði fimm ára dóm stinga í augun ef litið væri til dómafordæma. Nefndi hann meðal annars átta ára dóm sem Þjóðverjinn Elena Neuman hlaut í héraði árið 2010. Hún hafði þá flutt inn amfetamínbasa sem talið var að hægt væri að framleiða 153 kíló af amfetamíni miðað við 10% styrkleika eins og sagði í dómnum. Magnið hefði verið á þriðja hundrað k´ló miðað við 5,8% styrkleika sem miðað var við í dómnum yfir Mirjam og Atla Frey. Elena gerði sitt besta til að afvegaleiða rannsókn lögreglu og upplýsti nánast ekkert að fyrra bragði. Aftur á móti sagði Bjarni að bæði ákærðu, Mirjam og Atli Freyr, hefðu svarað spurningum lögreglu auk þess sem fyrir liggur að að Mirjam veitti mikla aðstoð í tálbeituaðgerðinni sem leiddi til þess að innflytjendur gerðu tilraun til þess að veita efnunum viðtöku þrátt fyrir efasemdir um að hún væri að vinna með lögreglu. Í ljósi þessa væru ellefu ára dómur yfir Mirjam og fimm ára dómur yfir Atla Frey afar þungur. Bjarni vísaði líka til skútumálanna á síðasta áratug. Annars vegar Papeyjarmálsins og hins vegar Pólstjörnumálsins. Í báðum málum féllu margir dómar en þeir misþungir enda þótti sannað að ábyrgð leikmanna væri mismikil. Í Papeyjarmálinu vísaði Bjarni í dóm sem Pétur Kúld fékk en sá veitti efnum móttöku á Djúpavogi en hans hlutverk átti að vera að flytja efnin á Selfoss. Lögregla stöðvaði för hans á Höfn í Hornafirði. Líklega væri um að ræða stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar hvað magn varði en Pétur hafi fengið 3,5 árs fangelsi í héraði. Dómnum hafi ekki verið áfrýjað til Hæstaréttar sem bendi til þess að ákæruvaldið hafi verið sátt við dóminn. Í Pólstjörnumálinu fékk einn eins árs skilorðsbundin dóm, Arnar Gústafsson. Sá hafði samþykkt að veita efnum viðtöku á sumarbústaðalandi í Rangárvallasýslu og fela þau þar. Efnin komust þó aldrei til hans. Bjarni vísaði til þess að líkt og Atli Freyr hafi líkt og Arnar ekki vitað neitt um innflutninginn, hann hafi verið sendill líkt og Atli Freyr en aðdragandinn hafi þó verið mun lengri í tilfelli Arnars. Ákvörðunin hafi verið yfirvegaðri. Atli Freyr tók við efnunum úr hendi Mirjam fyrir utan Hótel Frón. Reyndar var um gerviefni og eftirfararbúnað að ræða en skipulag lögreglu fór út um þúfur og var Atli Freyr handtekinn í stað þess að fylgja honum eftir.VísirPeð sem væri fórnað af höfuðpaurum Þáttur Atla Freys hefði líka verið afar takmarkaður. Hann væri neðst í valdapýramídanum, hefði litlar sem engar upplýsingar og hlutverk hans væri í raun aðeins að halda fjarlægð á milli skipuleggjenda og burðardýrs. Honum væri fórnað til að verja aðra. Það væri kunnuglegt stef að fá til slíks verks ungan mann sem hefði átt erfitt. Það hafi skipuleggjendur áttað sig á. Þá liggi fyrir að fólk í erfiðum aðstæðum hafi oftar en ekki meiri áhyggjur af því hvað höfuðpaurar gætu gert þeim en þeim dómi sem þau fá fyrir dómstólum. Ásetningur Atla hljóti því að vera af lægsta stig. Bjarni vísaði til sakaferils Atla Freys sem hefði einu sinni verið tekinn fyrir ölvunarakstur og hefði annars sex sinnum gerst brotlegur við fíkniefnalög. Fyrir utan 30 daga skilorðsbundinn dóm væri um sektir og sættir að ræða. Mánuði fyrir handtöku hefði Atli Freyr verið lagður í skyndi inn á geðdeild sem væri til marks um það ástand sem hann var í. Auk þess væri hann að reyna að taka sig taki. Væri í endurhæfingu og sömuleiðis í kvöldskóla við Myndlistarskóla Reykjavíkur. Þrátt fyrir erfiðleikana hefði hann margt að lifa fyrir enda þriggja barna faðir. Þá hafi Atli Freyr aldrei reynt að afvegaleiða lögreglu eins og algengt sé. Maður í hans stöðu hafi heldur ekki vitað mikið og ekki getað veitt neinar upplýsingar. Það fylgi hlutverki hans. Þá hafi hann verið handtekinn um leið og hann veitti efnunum viðtöku og ekki haft neitt ráðrúm til að hætta við. Telur Bjarni að refsing Atla Freys í héraði, fimm ára dómur, sé langt í frá að vera eðlileg og geti ekki verið neitt viðmið þegar Hæstiréttur felli sinn dóm.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Krefst þess að dómurinn yfir Mirjam verði staðfestur Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, fer fram á að ellefu ára dómur yfir hinni hollensku Mirjam Foekje van Twuijver úr héraði verði staðfestur. 27. janúar 2016 09:20 Vill að Hæstiréttur nýti tækifærið og hvetji burðardýr til samvinnu með lögreglu Björgvin Jónsson, verjandi Mirjam Foekje van Twuijver, telur fulla ástæðu til að milda ellefu ára dóm sem hún hlaut í héraði fyrir innflutning á um 20 kílóum af fíkniefnum í apríl í fyrra. 27. janúar 2016 10:18 Mest lesið Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Innlent Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Innlent „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Innlent Baráttan um Bandaríkin: Hvað gerist eiginlega í nótt? Erlent „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Innlent Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Innlent Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Frambjóðendur ræða málefni fatlaðs fólks Fjörutíu prósent kjósenda Miðflokks vilja Trump „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Leikskólinn Mánagarður opinn á ný Bein útsending: Loftslagsmál rædd á Umhverfisþingi Frambjóðendur ræða áfengis- og vímuefnamál Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Haustið 2008 að einhverju leyti „reyfarakennt“ Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum „Þetta var hræðilegt slys“ Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð Læknar boða miklu harðari aðgerðir Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Sjá meira
Krefst þess að dómurinn yfir Mirjam verði staðfestur Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, fer fram á að ellefu ára dómur yfir hinni hollensku Mirjam Foekje van Twuijver úr héraði verði staðfestur. 27. janúar 2016 09:20
Vill að Hæstiréttur nýti tækifærið og hvetji burðardýr til samvinnu með lögreglu Björgvin Jónsson, verjandi Mirjam Foekje van Twuijver, telur fulla ástæðu til að milda ellefu ára dóm sem hún hlaut í héraði fyrir innflutning á um 20 kílóum af fíkniefnum í apríl í fyrra. 27. janúar 2016 10:18