Elsa Nielsen útnefnd Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2016 15. janúar 2016 17:30
Listakonan Elsa Nielsen var í dag útnefnd Bæjarlistamaður Seltjarnarness. Elsa hefur sýnt og sannað með verkum sínum að hún er meðal okkar fremstu hönnuða í dag. Viðfangsefni hennar eru fjölbreytt og hafa hlotið verðskuldaða athygli hvort sem er á sviði grafískrar hönnunar, merkjahönnunar, auglýsingaherferða, málaralistar, stafrænnar myndvinnslu, teikninga, myndskreytinga, frímerkjahönnunar eða bókaútgáfu. Þannig vermdi litabók hennar Íslensk litadýrð efstu sæti bóksölulista undir lok síðasta árs og mörg hundruð manns fylgdust af áhuga með dagbókarfærslum hennar á Instagram og Facebook undir yfirskriftinni #einádag, þar sem hún skrásetti líf sitt með því að teikna eina mynd á dag allt árið um kring. Í tilefni af útnefningunni hefur verið opnuð sýning á öllum dagbókarfærslunum 365 í Gallerí Gróttu og stendur sýningin yfir til 5. febrúar.Fjölhæfur listamaður Elsa er fædd í Reykjavík árið 1974. Hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 1999. Hún starfaði í 13 ár sem hönnunarstjóri á auglýsingastofu ENNEMM en frá september 2013 hefur hún rekið sitt eigið hönnunarfyrirtæki, Nielsen hönnunarstofu. Hún býr á Seltjarnarnesi ásamt eiginmanni og þremur börnum. Á sviði málaralistarinnar hefur Elsa einkum einbeitt sér að því að mála uppstækkaðan grafískan myndflöt á striga með akrýllitum. Verkunum ljær hún dýpt með því að byggja flötinn upp með sparsli og sandi. Þó málverk Elsu standi sjálfstæð sýna þau glöggt hvernig henni tekst að færa margra ára reynslu og kunnáttu með grafíska miðlun yfir á annað stig. Strax á námsárum sínum fór Elsa að sýna verk sín og á nú að baki fjölda sam- og einkasýninga á sviði málaralistar. Á síðustu tveimur einkasýningum Elsu í Gallerí Gróttu og Mokka-Kaffi sýndi hún svo ljósmyndir unnar með stafrænni tækni. Þannig vann Elsa með mörg helstu kennileiti Seltjarnarness og Reykjavíkurborgar og setti í nýjan og ævintýralega búning. Verkin hafa hvarvetna vakið athygli og verið seld utan sem innanlands. Elsa er einn af fáum frímerkjateiknurum landsins. Hún er félagi í FÍT (Félag íslenskra teiknara) og gegndi þar stjórnarsetu frá 2010-2011. Hún er fyrrum félagi SÍM (Sambands íslenskra myndlistarmanna) og hefur unnið við ýmis dómarastörf innan FÍT og einnig fyrir ÍMARK (samtök markaðsfólks á Íslandi). Í dag situr hún í stjórn SÍÓ ( Samband Íslenskra Ólympíufara).Verðlaunuð á ýmsum sviðumElsa hefur hlotið margar viðurkenningar og verðlaun fyrir grafíska hönnun, bæði hérlendis og erlendis, en skemmst er að minnast tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2013 fyrir Brosbókina, barnabók sem hún myndskreytti, hannaði og er meðhöfundur að. Að auki hefur hún myndskreytt og komið að útgáfu fjölmargra annarra barna- og unglingabóka. Farsæll ferill og velgengni Elsu hefur ekki einskorðast við sköpun á sviði hönnunar og lista en margir þekkja hana betur fyrir afrek hennar á sviði íþrótta þar sem hún hampaði margsinnis Íslandsmeistara titli í badminton og var fulltrúi Íslands í einliðaleik á Ólympíuleikunum í tvígang. Einróma valMenningarnefnd Seltjarnarness var einróma í vali á Bæjarlistamanninum 2016. Elsa hefur sýnt að hún er vel að nafnbótinni komin og Seltirningar mega vera stoltir af að eiga jafn hæfileikaríkan einstakling innan sinna raða. Auk nafnbótarinnar hlýtur Bæjarlistamaðurinn verðlaunafé að upphæð einni milljón króna. Við útnefninguna tilkynnti Elsa að nafnbótinni fylgdi mikill heiður og að eitt af verkefnum hennar á árinu væri að miðla og vinna með skólabörnum á Nesinu. Nánar verður rætt við Elsu í helgarblaði Fréttablaðsins á morgun.
Menning Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira