Lífið

Fimm Hollywood-pör sem við sjáum eftir

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Það sjá eflaust margir eftir Britney Spears og Justin Timberlake
Það sjá eflaust margir eftir Britney Spears og Justin Timberlake
Það er algengt í Hollywood að tvær stjörnur verði ástfangnar. Það sem er enn algengara eru skammlíf ástarsambönd í Hollywood. Sum pör eru þó krúttlegri en önnur og mörgum sárnar þegar fréttir berast af sambandsslitum þeirra.



Britney Spears og Justin Timberlake

Þau voru uppáhaldspar margra á sínum tíma. Þau kynntust árið 1990 þegar þau léku saman í barnaþætti á Disney-stöðinni en þau byrjuðu ekki saman fyrr en árið 2000.

Sambandið endaði þó á slæmu nótunum þar sem Justin gaf út lagið Cry Me a River stuttu eftir sambandsslitin. Britney svaraði því seinna með laginu Everytime.

Talið er að ástæða sambandsslitanna hafi verið að Britney hélt framhjá Timberlake.







Freida Pinto og Dev Patel léku á mótu hvort öðru í Slumdog Millionaire.Vísir/Getty
Dev Patel og Freida Pinto

Þetta fallega par lék hvort á móti öðru í Óskarsverðlaunamyndinni Slumdog Millionaire og þau slógu sér saman eftir upptökur á myndinni.

Margir gagnrýndu sambandið þar sem Freida er fjórum árum eldri og var rísandi stjarna. En það er engum blöðum um það að fletta að þau hafi verið einstaklega heillandi par og fólk byrjaði að elska þau saman.

Þau náðu að halda sambandinu úr sviðsljósinu öll sex árin sem þau voru saman. Sambandið endaði í góðu og þau eru góðir vinir enn í dag.









Tim Burton og Helena Bonham-Carter voru saman í tíu ár.Vísir/Getty
Tim Burton og Helena Bonham-Carter

Sérkennilegasta og skemmtilegasta parið í Hollywood var saman í tíu ár.

Þau unnu mikið saman og áttu meðal annars saman tvö börn.

Það kom flestum mikið á óvart þegar þau ákváðu að slíta samvistum enda líta þau út fyrir að vera fullkomin fyrir hvort annað. 









Jennifer Aniston og Brad Pitt

Þótt liðin séu þó nokkur ár frá skilnaði Brads og Jennifer þá er fólk enn miður sín yfir slitunum.

Þau voru hvort í sínu lagi stærstu leikararnir í Hollywood og saman voru þau eitt öflugasta afl í leikaraheiminum.

Brad sótti um skilnað eftir fimm ára hjónaband en hann hafði þá verið byrjaður að hitta leikkonuna Angelinu Jolie á meðan þau léku saman í kvikmyndinni Mr. & Mrs. Smith. 









Seal og Heidi Klum voru gift í átta ár.Vísir/Getty
Heidi Klum og Seal

Þau kynntust árið 2004 þegar hún var ólétt að barni úr fyrra sambandi sem Seal ættleiddi síðar.

Hjónaband þeirra entist í 8 ár og þau eiga saman 3 börn. Það kom öllum að óvörum þegar þau ákváðu að skilja árið 2012 þar sem þau litu alltaf út fyrir að vera yfir sig ástfangin.










Tengdar fréttir

Verður næsta Bond-stúlka indversk?

Leikkonan Freida Pinto, sem sló í gegn í kvikmyndinni, Viltu vinna milljarð, hefur verið orðuð í hlutverk Bond stúlkunnar í nýjustu James Bond myndinni sem óskarsverðlaunaleikstjórinn Sam Mendes leikstýrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.