Skoðun

Um aukið aðgengi að áfengi í Háskóla Íslands

Ísak Rúnarsson skrifar

Árið er 2011 og uppi eru hugmyndir innan Háskóla Íslands um að endurvekja Stúdentakjallarann sem var fyrst opnaður árið 1975. Kjallarinn, eins og hann var kallaður, hafði þó lognast út af og honum loks lokað árið 2007 og enginn bar sem ætlaður var stúdentum hafði verið starfræktur í fjögur ár.



Dagdrykkja og sötur – fyrirhyggja og skynsemi

Hugmyndirnar um nýjan Stúdentakjallara snúa að því að byggja við Háskólatorg, samkomustað og félagsmiðstöð stúdenta og kennara við Háskóla Íslands. Ekki falla hugmyndirnar öllum í geð og uppi eru háværar efasemdarraddir um gagnsemi og gjöfulleika þess að opna stað á háskólasvæðinu sem býður upp á áfengi frá klukkan ellefu á daginn. Enda er það ljóst að verði þessar hugmyndir að veruleika hafi allir beint aðgengi að bjór og öðrum ólifnaði fyrir tiltölulega hóflegt gjald.



Efasemdarraddirnar benda á það að ekki kunni allir að fara með áfengi og fari svo að nýr Stúdentakjallari verði byggður séu miklar líkur á því að stúdentar leggist í dagdrykkju og sötur. Yrði eðli þeirrar dagdrykkju að sötrararnir myndu svo mæta hífaðir í tíma, valda truflunum og skemma fyrir kennslu. Svo ekki sé nú talað um þá óhæfu að kennari yrði Bakkusi að bráð fyrir kennslustund; þvílíkt hneyksli!



Árið 2011 eru horfurnar síður en svo góðar fyrir þessar efasemdarraddir en sama hvað tautar og raular virðast menn ætla að leggja í byggingu kjallarans. Fyrir efasemdarraddirnar hefur það sennilega verið ljúfsárt, því jafnvel þó kjallarinn verði byggður mun reynslan veita þeim uppreisn æru og sýna af hversu mikilli fyrirhyggju og skynsemi þær töluðu.



Fótboltaspilið brotnaði

Skautum nú fram til ársins 2015 þegar kjallarinn hefur verið starfræktur í þrjú ár í þessu 15.000 manna samfélagi sem gæti staðið undir því að vera fimmta stærsta sveitarfélag landsins. Hver er staðan? Skyldu stúdentar og kennarar mæta hífaðir í tíma að jafnaði? Syngja menn drykkjusöngva á göngum háskólans, léttir, ljúfir og kátir á góðum miðvikudegi?



Nei, svo er það víst ekki. Að undanskildu einu atviki sem átti sér stað eftir haustfögnuð starfsmanna háskólans, þar sem fótboltaspilið brotnaði, muna rekstraraðilar ekki eftir því að hlutirnir hafi nokkru sinni farið úr böndunum. Skemmst er frá því að segja að í öllum þeim kennslustundum sem undirritaður hefur sótt hafa samnemendur og kennarar verið allsgáðir og engar sögur er að segja af öðru háttalagi í öðrum deildum háskólans.



Raunar er það svo að sárafáir eru eftir sem gangast við því að hafa viðrað efasemdir. Það minnir um margt á þær efasemdarraddir sem heyrðust þegar bjórbanninu var aflétt í mars 1989, að minnsta kosti þekki ég ekki þann mann sem vill kannast við að hafa verið á móti því. Spurningin er því sú; hvað verður um efasemdarraddirnar nú ef áfengi verður hleypt í búðir?




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×