Körfubolti

Komast Keflavíkurkonur í úrslitin?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Keflavíkur.
Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Keflavíkur.
Kvennalið Keflavíkur getur tryggt sér sæti í lokaúrslitum Domino's-deildar kvenna í kvöld þegar liðið fær Hauka í heimsókn.

Keflavík hefur unnið tvo fyrstu leiki liðanna í undanúrslitunum og þarf bara einn sigur í viðbót til að spila í sautjánda sinn um Íslandsmeistaratitilinn í úrslitaeinvígi kvenna. Íslands- og deildarmeistarar Snæfells taka á móti bikarmeisturum Grindavíkur á sama tíma þar sem staðan 1-1 eftir að Grindavík jafnaði metin í síðasta leik. Báðir leikir hefjast klukkan 19.15.

Í kvöld kemur einnig í ljós hvaða lið tekur sæti Breiðabliks í Domino's-deild kvenna en Njarðvík og Stjarnan spila þá hreinan úrslitaleik um sætið og hefst leikurinn klukkan 19.15 í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Bæði lið hafa unnið einn leik en sigurvegari kvöldsins spilar í Domino's-deildinni næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×