Lífið

Brá rosalega þegar apinn stökk á mig

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég heiti Stuðfríður Krúttmundína Hekla Gauksdóttir en er samt alltaf kölluð Hekla,“ segir Hekla
"Ég heiti Stuðfríður Krúttmundína Hekla Gauksdóttir en er samt alltaf kölluð Hekla,“ segir Hekla vísir/vilhelm
Hvað heitir þú fullu nafni og hvað ertu gömul? „Ég heiti Stuðfríður Krúttmundína Hekla Gauksdóttir en er samt alltaf kölluð Hekla. Ég á afmæli eftir nokkra daga og þá verð ég 8 ára.“



Í hvaða skóla ertu og hver er eftirlætisnámsgreinin þín? „Ég er í Háteigsskóla í öðrum bekk og finnst skemmtilegast að læra stærðfræði og lestur.“

Varst þú ekki í auglýsingu fyrir Icelandair? „Jú, mamma mín var að vinna í auglýsingunni og spurði mig hvort ég vildi vera með í myndatöku. Það var skemmtilegt að taka þátt í auglýsingu og það sem var dálítið skrítið var að ég þurfti að eiga þykjustuforeldra í myndatökunni.“



Hefur þú farið í flugvél? „Já ég hef farið til Svíþjóðar og Englands nokkrum sinnum.“

Hvenær fórstu síðast og hvað upplifðir þú þá? „Ég fór síðast til Englands um áramótin með mömmu minni að heimsækja vinkonu hennar. Það var skemmtileg ferð og gistum við í fallegu húsi í sveitinni sem líktist helst kastala. Við fórum líka í lest til London og í bíó að sjá Paddington.“



vísir/vilhelm
Hver eru helstu áhugamálin þín? „Myndlist, fótbolti, skautar, dans, æfa á fiðlu og að fara í ferðalög.“ 

Hefur þú lent í einhverjum frekari ævintýrum? „Síðasta sumar fór ég með pabba mínum til Svíþjóðar í alvöru dýragarð. Þá var api sem stökk á hausinn á mér og mér brá rosalega mikið. Svo fórum við í alvöru draugahús í tívolíinu en þegar ég sá fyrsta skrímslið þorði ég ekki lengra og fór út aftur.“

Hvernig finnst þér skemmtilegast að leika þér? „Mér finnst gaman að leika mér í leik sem heitir 10, 20 við krakkana í skólanum mínum og svo á ég líka bestu vinkonur sem heita Embla og Bríet og þegar ég hitti þær þá finnst okkur gaman að leika í mömmó, monster high, í iPad, lita og teikna og margt margt fleira.“

Hvað langar þig helst að verða þegar þú verður stór? „Myndlistarkona, vísindamaður, læknir, leikkona, söngkona og bakari.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.