Bíó og sjónvarp

Sex af síðustu sjö líka fengið Óskar

Freyr Bjarnason skrifar
Jóhann Jóhannsson ásamt James Marsh, leikstjóra The Theory of Everything, og aðalleikurunum, Felicity Jones og Eddie Redmayne.
Jóhann Jóhannsson ásamt James Marsh, leikstjóra The Theory of Everything, og aðalleikurunum, Felicity Jones og Eddie Redmayne. Vísir/Getty
Tilkynnt verður um tilnefningar til Óskarsverðlaunanna á morgun og þá kemur í ljós hvort Golden Globe-hafinn Jóhann Jóhannsson verður á meðal tilnefndra fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything.

Miðað við söguna er afar líklegt að hann fái tilnefningu. Ekki nóg með það, því miklar líkur eru á því að hann hreppi sjálf Óskarsverðlaunin fyrstur Íslendinga. Í sex af síðustu sjö skiptum hefur sá sem hefur hlotið Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlistina einnig fengið Óskarinn.

Fyrir árin 2007 til 2012 voru sigurvegararnir þeir sömu á báðum hátíðunum. Það var ekki fyrr en á síðasta ári sem sigurvegarinn, Alex Ebert fyrir myndina All Is Lost, fékk ekki Óskar. Það sem meira er, hann fékk ekki heldur Óskarstilnefningu. Slíkt hefur gerst af og til, eða í þrjú af síðustu tíu skiptum.

Auk Alex Ebert hlaut Alexander Desplat ekki Óskarstilnefningu fyrir myndina The Painted Veil sem kom út 2006, þrátt fyrir að hafa hampað Golden Globe-verðlaunum skömmu áður. Hann gat þó ekki kvartað of mikið því fyrir myndina The Queen, sem kom út sama ár, fékk hann tilnefningu til Óskarsins. Þriðja dæmið um tónskáld sem hlaut enga Óskarstilnefningu þrátt fyrir Golden Globe-sigur er Howard Shore sem samdi tónlistina við The Aviator.

Þess má geta að með sigri sínum á Golden Globe-hátíðinni skaut Jóhann heimsfrægum tónskáldum á borð við Hans Zimmer (ein Óskarsverðlaun), Alexandre Desplat (sex Óskarstilnefningar) og þeim Trent Reznor og Atticus Ross (ein Óskarsverðlaun) ref fyrir rass.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.