Jólahátíðin mikla 11. desember 2015 11:00 Engin afsökun þótt það séu jól.
Nú þegar tæpar tvær vikur eru í jól eru líklegast flestir að keppast við að koma heimilinu og heimilisfólkinu í almennilegt stand. Klára að kaupa jólagjafirnar, fara með alla í jólaklippinguna, þrífa heimilið, baka smákökurnar, kaupa í matinn og skreyta jólatréð. Ekki má gleyma öllum jólahlaðborðunum og litlu jólunum þar sem nóg er af mat og víni, áður en sjálf jólahátíðin hefst.Einungis fimm dagar Samkvæmt skilgreiningu standa jólin yfir frá 24. desember til 6. janúar. Á þessu tímabili er nóg af veislum og áti og svo jólamyndaglápi, jólalestri og spilakvöldum með vinum og ættingjum. Við skulum þó hafa það hugfast að í desembermánuði, frá því að jólaundirbúningur hefst, og þangað til í byrjun janúar, þegar við sprengjum jólin í burtu á þrettándanum, eru einungis 5 hátíðardagar, ekki 37. Margir eiga það til að taka sér frí frá heilbrigðum lífsstíl alla þessa 37 daga og gleyma því að borða hollt og hreyfa sig. Það gefur augaleið að það er ekki beinlínis hollt að gera líkamanum það að sprengja sig út af söltum og þungum mat, ásamt sætindum, í svona langan tíma og leyfa sér að detta í algjöran letipakka þar sem mesta hreyfingin sem þú færð er að ganga frá ísskápnum og upp í sófa til þess að hafa það kósí.Mundu eftir hreyfingunni Að sjálfsögðu er það allt gott og blessað að gera sér glaðan dag um jólin, nota hátíðarnar til þess að eyða tíma með fjölskyldunni, borða góðan mat og hlaða batteríin fyrir nýja árið. Það er hins vegar svo auðvelt að nýta þennan tíma líka í að halda áfram að byggja líkamann upp til hins betra og koma sterkur inn í nýja árið, í stað þess að hrökklast af stað á nýju ári og ætla sko að fara í „átak“ eftir allt sukkið. Mjög sniðugt er til dæmis að gera það að hefð að fara út í góðan göngutúr með fjölskyldunni og koma þannig endurnærður inn og tilbúinn í næsta jólaboð. Aðrir þurfa á aðeins meira fjöri að halda og því tilvalið að skora á sig og aðra í kringum hátíðarnar og taka eina æfingu á dag áður en haldið er út í daginn, því líkurnar á því að maður fari að sprikla eftir að hafa borðað 450 grömm af hamborgarhrygg, meðlæti, jólaöli og heimagerðum ís eru afar litlar. Hér er dæmi um æfingu sem hægt er að taka 5 hringir af:l 20 armbeygjurl 20 hnébeygjurl 50 sprellikarlahoppl 1 mínútu plankil 20 dýfur á bekk Gangi ykkur vel.
Mest lesið Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Lífið Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Tíska og hönnun Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Bíó og sjónvarp Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Bíó og sjónvarp Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Lífið Dularfull tíst Dylans vekja furðu Lífið Átta ár án áfengis og fíkniefna Lífið Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Tónlist Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Jól Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Fleiri fréttir „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira