Unnu Golden State en töpuðu fyrir Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2015 07:30 Kobe Bryant í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Milwaukee Bucks náði ekki að fylgja eftir sigri sínum á meisturum Golden State Warriors um helgina þar sem að liðið tapaði óvænt fyrir einu lakasta liði deildarinnar í nótt, LA Lakers. Milwaukee varð fyrst allra liða í deildinni til að vinna Golden State sem hafði unnið fyrstu 24 leiki sína á tímabilinu. Þetta var aðeins fjórði sigur Lakers á tímabilinu en Kobe Bryant átti góðan leik og skoraði 22 stig auk þess sem hann gaf sex stoðsendingar. Sigur Lakers var öruggur en liðið náði 22 stiga forystu í þriðja leikhluta og var leikurinn aldrei spennandi eftir það. Michael Carter-Williams skoraði nítján stig fyrir Milwaukee en Greg Monroe spilaði ekki með liðinu í nótt. Cleveland vann Boston, 89-77, þar sem LeBron James skoraði 24 stig. Kevin Love bætti við 20 stigum og tók þar að auki átta fráköst. Avery Bradley skoraði sautján stig fyrir Boston sem missti leikinn úr höndunum í þriðja leikhluta, er Cleveland komst tíu stigum yfir eftir að Boston hafði verið mest fimm stigum yfir. Denver vann Minnesota, 112-110, og þar með sjötta sigur í síðustu sjö leikjum sínum. Randy Foye og Kenneth Faried voru báðir með nítján stig í leiknum. Sacramento vann Houston, 107-97. Þetta var þriðji sigur Sacramento í röð en DeMarcus Cousins skoraði 26 stig í leiknum og tók tólf fráköst. Rajon Rondo missti af leiknum þar sem að hann tók út leikbann en í fjarveru hans skoraði Darren Collison fjórtán stig auk þess sem hann gaf þrettán stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Boston - Cleveland 77-89 Minnesota - Denver 100-112 Sacramento - Houston 107-97 LA Lakers - Milwaukee 113-95
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira