Forsætisráðuneytið greiddi rúmar fjórar milljónir fyrir almannatengsla- og markaðsráðgjöf Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. desember 2015 14:18 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra vísir/ernir
Forsætisráðuneytið greiddi rúmar fjórar milljónir króna, eða 4.300.921, fyrir almannatengsla-og markaðsráðgjöf fyrirtækisins Árnasynir slf. Þá greiddi ráðuneytið félaginu Meltún ehf. rúmlega 9 milljónir, 9.138.410, vegna vinnu fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, en þar óskaði hún eftir sundurliðum á greiðslum til þeirra sem ráðuneytið fékk til sérfræði,-ráðgjafar-og kynningarstarfa frá upphafi árs 2014 til loka október 2015. Áður hafði Katrín spurt um hversu miklu fé hefði verið varið í þessi mál. Kom þá fram í svari ráðuneytisins að á árinu 2014 hefði sú upphæð numið tæpum 63 milljónum og það sem af er ári 2015 rúmum 26 milljónum. Upphæðirnar sem gefnar eru upp í svari forsætisráðuneytisins um sundurliðun kostnaðarins eru án virðisaukaskatts þar sem ráðuneytið fær hann endurgreiddan samkvæmt reglugerð. Mikið af þeirri vinnu sem ráðuneytið hefur greitt fyrir á þessu tæplega tveggja ára tímabili hefur verið fyrir stjórnarskrárnefnd og vegna verðtryggingarmála, eins og það er orðað í svarinu, en það má sjá í heild sinni hér.
Alþingi Mest lesið Fer í hart við konuna sem sakaði hann um nauðgun Erlent „Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Innlent Gaseitrun talin ólíkleg þrátt fyrir gasleka Erlent Hringdi út um allt en samt komust ekki allir í tæka tíð Innlent Afnemur handhafalaun vegna forsetavalds Innlent Blóðug slagsmál tveggja landsfundargesta Innlent Þykir leiðinlegt hvernig fundurinn fór Erlent Alvotech fær ekki að byggja leikskóla Innlent „Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra Innlent Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði Innlent Fleiri fréttir Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði „Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Verðlaunabændur vilja norskar kýr til landsins Afnemur handhafalaun vegna forsetavalds Alvotech fær ekki að byggja leikskóla Hringdi út um allt en samt komust ekki allir í tæka tíð Viðbrögð við hagræðingartillögum og stofnun varnarmálanefndar Verksamningur undirritaður um þriðja áfanga Dynjandisheiðar Fimmtíu og fjórir sækja um stöðu þingmanns hjá borginni Helga Rósa nýr formaður Fíh Gera ráð fyrir sparnaði upp á meira en 70 milljarða Blóðug slagsmál tveggja landsfundargesta Ætlar að flýta öryggis- og varnarmálastefnu og stofna nýja nefnd Sýna á spilin með 25 liða aðgerðaáætlun Ætlar að tryggja flug til Ísafjarðar Þorgerður lætur ekki nettröllin hræða sig Bryggjunni í Vogum lokað vegna skemmda Kennarar samþykkja kjarasamning Með fimmtán kíló af grasi í töskunni Úr einu ráðuneyti í annað: Upplýsingafulltrúi verður verkefnastjóri áhersluverkefna Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Voru að meta skemmdir eftir fyrri lægð þegar aldan gleypti þá Sjálfstæðisflokkurinn hafi aldrei verið í verri stöðu Kynntu hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar „Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra Þung færð fyrir vestan og víðar Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Telur einnar nætur virði að reyna að fá Spasskí Sjá meira