Fótbolti

Ödegaard fær ekki tækifæri hjá Benitez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ödegaard í leik með Real.
Ödegaard í leik með Real. vísir/getty
Þó svo Rafa Benitez, þjálfari Real Madrid, hvíli hálft lið sitt í bikarleiknum gegn Cadiz í kvöld þá er ekkert pláss fyrir Norðmanninn unga, Martin Ödegaard.

Sergio Ramos, Raphael Varane, Marcelo og Dani Carvajal eru allir meiddir. Benitez hefur svo ákveðið að hvíla Keylor Navas, Danilo, Toni Kroos, Luka Modric, Cristiano Ronaldo, Karim Benzema og Gareth Bale.

Það ætti því að vera pláss fyrir efnilega menn en Benitez hefur ekki áhuga á að nota Ödegaard.

Samt er strákurinn í lykilhlutverki hjá varaliði félagsins undir stjórn Zinedine Zidane. Eina ástæðan hlýtur að vera sú að Benitez hafi einfaldlega enga trú á Norðmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×