Viðskipti innlent

Magnús Guðmundsson: „Ég sit með ekkert í höndunum um meinta refsiverða háttsemi mína“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Magnús Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Magnús Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/stefán

Það er nokkur þungi í réttarhöldum í CLN-málinu svokallaða sem nú standa yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur og augljóst að sakborningar eru afar ósáttir við málatilbúnað og vinnubrögð embættis sérstaks saksóknara.



Þá er Björn Þorvaldsson, saksóknari, ekkert sérstaklega hrifinn af öllu því sem sakborningarnir hafa fram að færa og hefur nokkrum sinnum komið til snarpra orðaskipta í réttarsal þar sem dómari hefur þurft að skakka leikinn.



Í málinu svara stjórnendur Kaupþings enn á ný til saka vegna viðskipta bankans í aðdraganda hrunsins haustið 2008. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, eru nú fyrir dómi í fjórða sinn en Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, í þriðja sinn.



Lánveitingar upp á hundruð milljóna evra

Þremenningarnir afplána nú allir langa fangelsisdóma á Kvíabryggju vegna aðkomu sinnar að Al Thani-málin en hafa að auki fengið dóma í öðrum málum sem á þó enn eftir að taka fyrir í Hæstarétti. Í gær gáfu Hreiðar og Sigurður skýrslu fyrir dómi en í morgun var komið að Magnúsi. Hreiðar og Sigurður eru reyndar í dómsal einnig þar sem þeir komust ekki til Kvíabryggju í gær vegna veðurs og dvöldu þremenningarnir því í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg í nótt.



Magnús er ákærður fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum Hreiðars og Sigurðar sem snúa að lánveitingum til eignalausa eignarhaldsfélaga vegna kaupa lánshæfistengdum skuldbréfum útgefnum af Deutsche Bank en bréfin voru tengd skuldatryggingarálagi Kaupþings.



Lánin voru veitt á tímabilinu ágúst til október 2008 og hljóðuðu upp á samtals 510 milljónir, en þau fengust aldrei greidd til baka.



Fullyrðingar í ákæru sem standist ekki skoðun

Þinghaldið í morgun byrjaði á því að Magnús ávarpaði dóminn og tjáði sig um sakarefnið. Innti Pétur Guðgeirsson, dómsformaður, hann eftir hvort það yrði ekki örugglega stutt en Magnús svaraði því til að ekki væri endilega hægt að mæla það. Ávarpið myndi hins vegar vera málefnalegt.



Magnús sagði að ef að gögn væru skoðuð væri ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að hann væri saklaus af ákærunni í málinu. Þá gagnrýndi hann skort á röksemdum í ákæru og sagði að þar væru fullyrðingar sem stæðust ekki skoðun.



„Í ákærunni er í engu getið um hver hinn veigamikli þáttur minn á að hafa verið. Það liggur ekkert fyrir í þessu máli hvernig hin takmarkaða aðkoma mín á að hafa tengst ákvörðun um þessar lánveitingar Kaupþings. [...] Ég sit með ekkert í höndunum um meinta refsiverða háttsemi mína,“ sagði Magnús.



„Þetta fer nú að verða búið, er það ekki?“

Hann sagði lánin hafa verið veitt gegn tryggingum í skuldabréfum Deutsche Bank. Það var því ekki hægt að tapa á viðskiptunum nema annað hvort Deutsche eða Kaupþing færu í þrot. Magnús kvaðst ekki hafa trúað því að svo gæti farið og gat ekki séð hvernig tapa mætti á því að veðja á tilvist Kaupþings.



Þegar Magnús hafði talað sleitulaust í um hálftíma gerði saksóknari athugasemdir við lengd ávarpsins. Dómsformaður leyfði Magnúsi hins vegar að halda áfram:



„Ákærði er ekki löglærður og þetta fer nú að verða búið, er það ekki?“ spurði dómarinn. Magnús játti því en beindi orðum sínum svo að saksóknara:



„Ég hef verið mjög málefnalegur og haldið mig við ákæruefnin. Ég tók hérna út 20 blaðsíður um annað órétti sem þú hefur beitt mig.“


Tengdar fréttir

Komust ekki á Kvíabryggju

Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson og Sigurður Einarsson komust ekki á Snæfellsnes að loknum fyrsta degi í aðalmeðferð CLN-málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×