Var búin að fagna sigri í 18 deildarleikjum í röð fyrir tapið í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2015 13:00 Bryndís Guðmundsdóttir og Helena Sverrisdóttir. Vísir/Stefán
Helena Sverrisdóttir og félagar í kvennaliði Hauka í körfubolta töpuðu í gær sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þær heimsóttu Íslandsmeistara Snæfells í Stykkishólm. Snæfell hélt sinni sigurgöngu áfram og stöðvaði sigurgöngu Haukanna með 75-65 sigri en staðan var jöfn þremur mínútum fyrir leikslok. Haukaliðið var búið að vinna fyrstu tólf leiki tímabilsins, alla fimm leiki sína í Lengjubikarnum og svo fyrstu sjö leiki sína í Domino´s deildinni. Landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir er að spila sitt fyrsta tímabil á Íslandi síðan veturinn 2006-2007. Haukaliðið vann ellefu síðustu deildarleiki sína það tímabil. Síðasta tap Helenu í deildinni á undan tapinu í gær var á móti Keflavík í Keflavík 17. desember 2006. Það var eina deildatap Haukanna tímabilið 2006-07. Keflavík vann þann leik 92-85 þrátt fyrir að Helena hafi verið með 31 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar. Helena var með 19 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar í gær en hún var ekki stighæst í Haukaliðinu því Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 20 stig. Helena var því búin að fagna sigri í 18 deildarleikjum í röð þegar kom að leiknum í Hólminum í gær. Tapleikirnir eiga eitt sameiginlegt þó að Helena hafi ekki verið að spila á móti sama félagi. Bryndís Guðmundsdóttir, leikmaður Snæfells, var einnig í Keflavíkurliðinu sem vann Haukana fyrir rétt tæpum níu árum. Bryndís átti mjög góðan leik í gær, skoraði 16 stig og spilaði góða vörn á Helenu. Bryndís skoraði meðal annars tveimur stigum meira en allt Haukaliðið (5-3) á síðustu þremur mínútum leiksins sem Snæfellsliðið vann 13-3.
Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Snæfell fyrst til að vinna Helenu og Haukana Íslandsmeistarar Snæfells komust á toppinn í Dominos-deild kvenna með glæsilegum sigri á meistaraefnunum úr Hafnarfirði. 29. nóvember 2015 21:00 Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Uppgjör og viðtöl: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira
Snæfell fyrst til að vinna Helenu og Haukana Íslandsmeistarar Snæfells komust á toppinn í Dominos-deild kvenna með glæsilegum sigri á meistaraefnunum úr Hafnarfirði. 29. nóvember 2015 21:00