Fótbolti

Balague: Perez mun líklega reka Benitez

Stefán Árni Pálsson skrifar
Farið að hitna verulega undir Rafa.
Farið að hitna verulega undir Rafa. Vísir/getty
Guillem Balague, einn þekktasti íþróttafréttamaður Spánar, segir að Florentino Perez, forseti Real Madrid, muni að öllum líkindum reka Rafa Benitez sem stjóra liðsins eftir niðurlæginguna í gær.

Barcelona valtaði yfir Real Madrid á þeirra eigin heimavelli, 4-0, í gærkvöldi.

Luis Suarez gerði tvö mörk fyrir Barca í leiknum og Neymar og Iniesta sitt markið hvor. Barcelona hefur nú sex stiga forskot á Real Madrid og það verður gríðarlega erfitt fyrir að liðið að ná þeim upp úr þessu.

Benitez hafði, fyrir leikinn í gær, aðeins tapað einum leik með liðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×