Fótbolti

Wolfsburg á toppinn með sigri í Moskvu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wolfsburg er í góðri stöðu í C-riðli.
Wolfsburg er í góðri stöðu í C-riðli. vísir/getty
Wolfsburg tyllti sér á topp B-riðils Meistaradeildar Evrópu með 0-2 sigri á CSKA Moskvu á útivelli í dag.

Þýsku bikarmeistararnir eru nú með níu stig, tveimur stigum meira en Manchester United sem tekur á móti PSV Eindhoven í hinum leik riðilsins klukkan 19:45.

Staðan var markalaus í hálfleik og fram á 67. mínútu þegar Igor Akinfeev, markvörður CSKA, skoraði sjálfsmark.

Varamaðurinn André Schürrle gulltryggði svo sigur Wolfsburg þegar hann skoraði seinna mark liðsins tveimur mínútum fyrir leikslok.

Wolfsburg tekur á móti Man Utd í lokaumferð riðlakeppninnar á meðan CSKA sækir PSV heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×