Bíó og sjónvarp

Ólafur Darri með gott hlutverk í Emerald City

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar
Vísir/Anton
Stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson, mun verja næstu mánuðum í að flengjast á milli Íslands, Spánar, Ungverjalands og Króatíu. Hann fer með hlutverk í sjónvarpsþáttaseríu sem NBC framleiðir. Tökustaðirnir eru ofangreindir utan Íslands.

„Þetta er útgáfa af Galdrakarlinum í Oz,“ segir Ólafur Darri í samtali við Vísi en hann segist ekki geta greint frá því hvern hann er að fara að leika.

„Þetta er ekkert risahlutverk, en mjög gott hlutverk og ég hlakka til að gera það. ÉG verð „on and off“ við tökur nú næstu mánuði á Spáni, Ungverjalandi og Króatíu. Sem betur fer þarf ég ekki að vera við tökur allan tímann.“

Ben Stiller frábær náungi

Vísir hafði fyrir því heimildir fyrir um mánuði að Ólafur Darri myndi fara með hlutverk í Zoolander 2 en þá sagðist leikarinn því miður ekkert geta tjáð sig um málið. Nú hins vegar getur hann staðfest að svo sé í pottinn búið. En, þetta er allt hið skondnasta mál, að mati Darra:

„Zoolander er búin í tökum og verður frumsýnd í febrúar. Ég leik pínku-pínku-lítið hlutverk. Menn verða að halda augunum opnum allan tímann til að sjá mig, það er ef ég verð ekki klipptur út,“ segir Ólafur Darri og kímir.

En, ykkur Ben Stillers, sem er potturinn og pannan í Zoolander, ykkur er vel til vina. „Jájá, eftir Walter Mitty þá höfum við haldið sambandi. Enda er hann sérdeilis góður drengur, ekki annað hægt að segja.“

Ólafur Darri segist ekkert geta sagt um hvort af frekari samstarfi þeirra vinanna verði, en hann vonar svo sannarlega að svo verði.

Leikur á móti Vincent D'Onofrio

Ekkert vantar uppá að hógværðina hjá stórleikaranum. Og blaðamaður nær honum ekki upp í neinar hæðir varðandi glæstan ferilinn, en Ólafur Darri hefur undanfarin ár verið að leika í þáttum og kvikmyndum í mekka kvikmyndagerðarinnar, Bandaríkjunum.

„Ég hef verið ótrúlega heppinn og gaman að fá að vinna við þetta. Já, lukkan hefur leikið við mig. Það verður bara að segjast eins og er,“ segir Ólafur Darri.

Og þó ótrúlegt megi heita þá hefur Ólafur Darri ekki svo mikið sem kynnt sér hverjir þetta eru sem leika á móti honum í Emerald City.

„Jú, hann er þarna hann Vincent D'Onofrio. Sem var í Kubrik-myndinni Full Metal Jackett. En, nei, ég veit ekki hverjir eru í þessu.“

Þannig að þú ferð bara í þetta eins og að drepa naut?

„Já, verður maður ekki að gera það?“

Býr í blokk og verslar í Bónus

En, nú þegar hlutverkin taka við, eitt af öðru, þar sem kvikmyndagerðin stendur sem hæst; þú hlýtur að vera orðinn moldríkur?

„Nei, þegar menn spyrja segi ég alltaf: Ég þarf að vinna upp öll árin sem ég var að vinna sem listamaður á Íslandi. Borga reikninga sem söfnuðust þá upp. En, það kemur. Ég er nýbyrjaður á nýjum markaði þar sem enginn veit hver ég er og skítsama þó ég hafi unnið eins og eina Eddu. Þá þarf maður bara að sýna hvað í manni býr, vinna vel og smátt og smátt er manni treyst fyrir stærri hlutverkum. Og þá kannski kemur það. Ég kvarta ekki en ég er ekki orðinn einhver ríkisbubbi, langt því frá, en ég versla enn í Bónus og bý í blokkaríbúð.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×