Hlynur skilaði tvennu þriðja leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2015 20:26 Hlynur Bæringsson. Vísir/Getty
Hlynur Bæringsson og félagar hans í Sundsvall Dragons unnu öruggan fjögurra stiga sigur á KFUM Nässjö, 87-83, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Þetta var annar sigurinn á stuttum tíma hjá Sundsvall Dragons á móti Nässjö-liðinu en Drekarnir unnu Nässjö á útivelli fyrir viku síðan. Hlynur Bæringsson var með þrennu í þriðja leiknum í röð en hann endaði með 16 stig og 12 fráköst. Hlynur hitti meðal annars úr 3 af 5 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Drekarnir hans Hlyns hafa nú unnið fjóra af fyrstu sex leikjum sínum í sænsku deildinni en liðið er í fimmta sæti deildarinnar. Nässjö var í 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn en tvö af þremur töpum liðsins á tímabilinu hafa nú komið á móti Hlyni og félögunum. Sundsvall Dragons vann bæði fyrsta (22-17) og annan leikhlutann (26-18) og var með þrettán stiga forskot í hálfleik, 48-35. Nässjö náði að minnka aðeins muninn í þriðja leikhlutanum en heimamenn í Sundsvall Dragons voru enn ellefu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 71-60. Það kom spenna í leikinn í lokaleikhlutanum þar sem gestirnir minnkuðu muninn niður í fjögur stig, 78-74 þegar þrjár og hálf mínúta voru eftir. Drekarnir voru sterkari á lokasprettinum og tókst að landa mikilvægum sigri.
Dominos-deild karla Mest lesið Átján ára skíðakona lést á æfingu Sport Sjáðu vélina sem „saumar saman“ Laugardalsvöllinn Íslenski boltinn Aldrei selst fleiri miðar á heimaleik hjá Álftanesi Körfubolti Sara ætlar að komast á heimsleikana í gegnum Afríku Sport Læknir Maradona í réttarsalnum: Hann var mjög erfiður sjúklingur Fótbolti Frederik Schram aftur til Vals: „Enginn svekktari en Ömmi sjálfur“ Íslenski boltinn „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Íslenski boltinn Magnús býður sig fram til forseta ÍSÍ Sport Hópur Snorra fyrir síðustu leikina: Reynir að verða einn af strákunum okkar Handbolti Valdimar verður með í forsetaslagnum Sport Fleiri fréttir Í beinni: Álftanes - Tindastóll | Ná heimamenn að töfra fram svör? Aldrei selst fleiri miðar á heimaleik hjá Álftanesi Treyja Bryants margfaldast í verði og varð sú fjórða dýrasta í sögunni Klósettpappír út um allt á vellinum „Ég er bara svo fúll út í okkur sjálfa“ „Bara eitthvað úrslitakeppnisrugl“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 99-100 | Ótrúlegur endir kostaði Grindvíkinga sigurinn „Mjög auðveld aðlögun fyrir mig“ Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Hvergerðingar í úrslit umspilsins „Þjöppuðum okkur saman og kláruðum þetta“ Jón Axel og félagar upp í spænsku úrvalsdeildina Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 73-76 | Njarðvíkur-sigur í spennutrylli Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Fyrrum nýliði ársins í NBA reynir fyrir sér í hnefaleikum „Þessar stelpur kalla ekki allt ömmu sína“ „Vonandi nær maður að grípa í einn svona bikar“ Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Sjá meira