Fótbolti

Dortmund saxaði á forskot Bayern með sigri á Schalke

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leikmenn Dortmund fagna marki Aumbeyang.
Leikmenn Dortmund fagna marki Aumbeyang. Vísir/getty
Dortmund vann 3-2 sigur á erkifjendunum í Schalke á heimavelli í dag en með sigrinum saxaði Dortmund á forskot Bayern Munchen á toppi þýsku deildarinnar.

Dortmund var í miklum ham í leiknum og komst í 3-1 með mörkum frá Shinji Kagawa, Matthias Ginter og Pierre-Emerick Aubameyang en Klaas Jan-Huntelaar náði að minnka muninn á 71. mínútu með öðru marki sínu í leiknum.

Dortmund fékk nóg af færum til þess að gera út um leikinn en vann að lokum nauman 3-2 sigur en þetta var fjórði sigur Dortmund í röð  í þýsku deildinni eftir skellinn gegn Bayern Munchen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×