Fótbolti

Ronaldo skoraði í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo er kominn með átta mörk í spænsku deildinni í vetur.
Ronaldo er kominn með átta mörk í spænsku deildinni í vetur. vísir/getty
Real Madrid náði þriggja stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Las Palmas á Santiago Bernabeu í dag.

Isco kom Real Madrid yfir á 4. mínútu og 10 mínútum síðar jók Cristiano Ronaldo muninn í 2-0 með sínu áttunda deildarmarki í vetur.

Hernan minnkaði muninn í 2-1 á 38. mínútu en aðeins fimm mínútum síðar skoraði Jose Rodríguez þriðja mark Madrídinga sem hafa unnið sjö af 10 deildarleikjum sínum og gert þrjú jafntefli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×