Fótbolti

Ekkert bjórbann hjá Benitez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rafa Benitez.
Rafa Benitez. vísir/getty
Rafa Benitez, þjálfari Real Madrid, er orðinn þreyttur á sögum um hvað hann á að vera erfiður og leiðinlegur við leikmenn sína.

Alls konar sögur hafa sprottið upp um hegðun hans síðan hann varð þjálfari liðsins. Hann er meðal annars sagður hafa bannað Sergio Ramos að drekka bjór.

„Ég hef lesið ýmislegt rugl. Eins og að ég eigi að hafa mælt magnið af ólífuolíu í salatinu hjá leikmönnum og að ég hafi bannað Ramos að drekka bjór. Þetta eru fáranlegar sögur," sagði Benitez.

Það hefur gengið vel hjá Real undir stjórn Benitez og hann skilur ekki af hverju verið er að búa til neikvæða hluti um hann og liðið.

„Þetta kemur mér verulega á óvart því það er svo margt gott og jákvætt í gangi. Við reynum samt að láta það ekki hafa áhrif á okkur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×