Bíó og sjónvarp

Punkturinn: Fengu þær skelfilegu fréttir að þau ættu von á rauðhærðu barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Foreldrarnir tóku fréttunum illa.
Foreldrarnir tóku fréttunum illa. vísir
Þriðji þátturinn af Punktinum er kominn á Vísi en þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 3 á laugardagskvöldum.

Í þættinum má, meðal annars, sjá atriði þar sem gert er grín af rauðhærðu fólki. Einnig er sett á svið atriði þar sem ung kona er látin skrifa undir allskonar pappíra áður en hún stunda kynlíf með manni.

Hópurinn á bak við Punktinn sat stíft allt síðastliðið ár yfir handritsgerð fyrir seríuna en kjarninn í hópnum hefur verið að leika sér með gerð sketsa síðan í Menntaskólanum í Kópavogi.

Síðan þá hafa nokkrir einstaklingar bæst í hópinn og eftir stendur samheldin hópur hæfileikaríks fólks sem hefur ekkert annað á stefnuskránni en að framleiða gamanþætti þar sem ekkert er heilagt og allt er fyndið.

Hópinn skipa Sindri Gretars, Bjarki Már Jóhannsson, Tómas Valgeirsson, Guðmundur Heiðar Helgason, Daníel Grímur Kristjánsson, Þórunn Guðlaugsdóttir, Egill Viðarsson, Þór Þorsteinsson, Viktor Bogdanski, Tanja Björk og Karl Lúðvíksson en til viðbótar er frábær hópur af leikurum og vinum í kringum hópum sem yfirleitt er kippt í þegar verið er að skipa í hlutverk.

Atriðið í þættinum þykja ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. 


Tengdar fréttir

Punkturinn: Sjáðu fyrsta þáttinn

Gamanþættirnir Punkturinn hófu göngu sína síðastliðið laugardagskvöld á Stöð 3. Þættirnir eru ávallt í opinni dagskrá og einnig verða þeir í boði hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×