Fótbolti

Suarez með þrennur í sigri Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Luis Suarez
Luis Suarez vísir/getty
Barcelona vann góðan sigur á Eibar í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikurinn fór 3-1 fyrir heimamenn.

Borja Baston kom Eibar óvænt yfir eftir aðeins tíu mínútna leik. Þá var komið að Luis Suarez sem skoraði næstu þrjú mörk leiksins og tryggði Barcelona þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni.

Barcelona er í öðru sæti deildarinnar með 21 stig, jafn mörg stig og Real Madrid sem er í því efsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×