Bíó og sjónvarp

Lagarfljótsormurinn með stjörnustæla

Eirik Sördal skrifar
Hindurvitni er nýr íslenskur fræðslu- og skemmtiþáttur um hin ýmsu fyrirbæri í íslenskri þjóðtrú. Í síðasta þætti leiddi Þorvaldur Davíð Kristjánsson áhorfendur Stöðvar 2 í allan sannleika um fjölbreytni íslenskra skrímsla og kynjaskepna.

Einnig var leitað álits Arngríms Vídalín, þjóð- og skrímslafræðings, og Eddu Elísabetar Magnúsdóttur, líffræðings, á hinum svokölluðu duldýrum.

Í þættinum er meðal annars fjallað um tilurð Lagarflótsormsins og sagt frá störfum sannleiksnefndar sem Fljótsdalshérað setti á laggirnar til að úrskurða um tilvist þekktasta skrímslis Íslands.

Hróður hans hefur borist út fyrir landsteinana því minnst var á orminn í X-Files þáttaröðinni á tíunda áratugnum. Frægð hans jókst þó til muna þegar myndband Hjartar Kjerúlfs, bónda, sprengdi internetið fyrir nokkrum árum.

Er Lagarfljótsormurinn orðinn of góður með sig? Eða eru önnur íslensk skrímsli, líkt og Nykurinn, Þorgeirsboli og Skeljaskrímslið kannski öfundsjúk vegna hinnar nýfengnu heimsfrægðar ormsins?

Hér fyrir ofan má sjá brot úr þættinum þar sem íslensku skrímslin eru meðal annars túlkuð með brúðum sem Þorvaldur Gunnarsson hannaði og leikstýrði. Raddir skrímslanna eru Fanney Birna Jónsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson, Ómar Örn Bjarnþórsson og Tryggvi Ólafsson. Hrund Atladóttir gerði grafík.

Hindurvitni er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudögum klukkan 20.35. Í þætti kvöldsins mun Þorvaldur skoða sérstöðu íslenskra álfa með nýstárlegum hætti. Þættirnir verða alls sex talsins.


Tengdar fréttir

Vildi hætta í leiklistinni og fór í byggingavinnu

Þorvaldur Davíð Kristjánsson tók nýlega að sér hlutverk þátta­gerðar­manns í sjónvarpi ásamt félaga sínum Eirik Sördal og Hrafntinnu Karlsdóttur, unnustu sinni. Hugmyndin var að skoða hin ýmsu fyrirbæri í íslenskri þjóðtrú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×