Erlent

Ræða öryggismáli í lofti yfir Sýrlandi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Herflugvélar Rússa og Bandaríkjamanna komust í nágvígi um helgina. Mynd úr safni.
Herflugvélar Rússa og Bandaríkjamanna komust í nágvígi um helgina. Mynd úr safni. Vísir/AFP
Rússar og Bandaríkjamenn ætla að funda um loftöryggismál í Sýrlandi eftir að tvær flugvélar ríkjanna komu mjög nálægt hvor annari á laugardag. Þetta verða þriðju viðræðurnar sem þjóðirnar tvær halda sín á milli vegna loftöryggismála.

Rússar hófu lofthernað í Sýrlandi 30. september síðastliðinn, þar sem, að eigin sögn, spjótunum var beint gegn vígamönnum ISIS og öðrum uppreisnarhópum, en fyrir voru Bandaríkjamenn að stunda loftárásir á ISIS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×