Allt um Tesla Model X: Er aðeins 3,2 sekúndur í 100 Finnur Thorlacius skrifar 30. september 2015 14:56 Við kynninguna á Tesla Model X í gær.
Nú þegar Tesla er búið að svipta hulunni af nýjum Model X jepplingi sínum er rétt að skoða hverskonar bíll þetta er. Í fyrsta lagi gengur hann alfarið fyrir rafmagni, rétt eins og Model S bíllinn og kemst við bestu aðstæður 420 km á hverri hleðslu. Með sínar stóru rafhlöður vegar hann 2.450 kíló en samt er hann æði snöggur og kemst í 100 km hraða á litlum 3,2 sekúndum. Það hjálpar við upptökuna að bíllinn er fjórhjóladrifinn, hvað annað fyrir jeppling?Afar þunn sæti eru í bílnum en vafalaust þægileg.Bíllinn er 7 sæta með þrjár sætaraðir og sætin er þynnri en almennt hefur sést í bílum. Margt er sameiginlegt í Model X og í Model S og fyrir miðju mælaborði þeirra beggja er risastór aðgerðarskjár sem stjórnar nær öllu í bílnum, meðal annars 17 hátalara hljóðkerfinu sem er víst ótrúlegt til hlustunar. Bílarnir eru byggðir á sama undirvagni og drifrásin er eins. Model X er með fiðrildahurðum sem opnast upp, en það er Model S ekki. Elon Musk, stofnandi og aðaleigandi Tesla segir að Model X hafi fengið fimm stjörnur á öllum sviðum árekstarprófana og bíllinn sé öruggasti bíll í heimi. Model X bremsar sjálfur ef farið er of nálægt næsta bíl og eykur það enn á öryggi hans. Í bílnum eru filterar sem sía út skaðlegar bakteríur, vírusa, fræ, sót og annan ófögnuð úr andrúmsloftinu og segir Musk að þar fari 300 sinnum betri sía en almennt gerist í bílum. Loftgæði inní bílnum er því eins og best gerist á skurðstofum spítala.Fiðrildahurðirnar eru sérstakar.Fiðrildahurðirnar eru með skynjara sem leyfa aðeins opnun ef til þess er pláss. Burðargeta Model X er 2.270 kíló og þó 7 manns séu í bílnum er greinilega hægt að flytja mun meira í bílnum. Í öflugustu gerð Model X og þegar stillt er á “Ludicrous-Mode” er bíllinn aðeins 3,2 sekúndur í 100 km hraða með sín 762 hestöfl. Tesla hefur nú þegar tekið á móti 25.000 pöntunum í Model X og hefjast afhendingar á bílnum fyrir alvöru í byrjun næsta árs, meðal annars til Íslands en nú þegar hefur Even, söluaðila Tesla bíla á Íslandi, borist 34 pantanir í bílinn. Í dag hefur Even selt eina 40 bíla af Tesla Model S og fleiri þannig bílar eru á leiðinni. Þeim fer því hratt fjölgandi Teslunum á götum landsins. Hér fyrir neðan má sjá Elon Musk, forstjóra Tesla, svipta hulunni af Model X í verksmiðju fyrirtækisins í Fremont í Kaliforníu í gær.
Tengdar fréttir Tesla tapaði 21 milljarði á fyrsta ársfjórðungi Meira tap en líka meiri velta en spáð var á Wall Street. 7. maí 2015 12:48 Er til flottari hurðaopnun en í Tesla Model X? Hurðin hvarf undir sílsa bílsins við opnun. 30. september 2015 10:15 Audi kynnir keppinaut Tesla Model X Hefur 500 km drægni og afar lágan loftmótsstuðul. 19. ágúst 2015 14:05 Tesla Model S P85D fékk 103 stig hjá Consumer Report Þurfa að endurskoða einkunnaskala sinn. 27. ágúst 2015 15:24 Fyrstu Tesla Model X rúlla út í dag Margra ára bið loks á enda. 29. september 2015 14:49 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent
Tesla tapaði 21 milljarði á fyrsta ársfjórðungi Meira tap en líka meiri velta en spáð var á Wall Street. 7. maí 2015 12:48
Er til flottari hurðaopnun en í Tesla Model X? Hurðin hvarf undir sílsa bílsins við opnun. 30. september 2015 10:15
Audi kynnir keppinaut Tesla Model X Hefur 500 km drægni og afar lágan loftmótsstuðul. 19. ágúst 2015 14:05
Tesla Model S P85D fékk 103 stig hjá Consumer Report Þurfa að endurskoða einkunnaskala sinn. 27. ágúst 2015 15:24