Fótbolti

Verður Barcelona sparkað úr spænsku deildinni?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi hjá Barcelona.
Lionel Messi hjá Barcelona. Vísir/Getty
Framtíð Barcelona í spænsku deildinni gæti verið í uppnámi kjósi Katalóníubúar sjálfsstæðisflokkinn til valda í kosningum í Katalóníu um næstu helgi.

Katalóníubúar ganga að kjörkössunum á sunnudaginn kemur og þar er óbeint kosið um hver eigi að stýra Katalóníu í framtíðinni en einn stærsti flokkurinn í  Katalóníu hefur sóst eftir sjálfstæði.

„Sameinumst um já" flokkurinn hefur fengið gott fylgi í skoðunarkönnunum og er sigurstranglegur í kosningunum. Stefna flokksins er að taka aftur upp skipulag Spánar frá 1872 þegar Katalónía var ekki hluti af Spáni.

Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, hefur blandað sér inn í kosningarbaráttuna með því að lýsa því yfir að Barcelona eigi ekki framtíð í deildinni kjósi Katalóníubúar sjálfsstæði.

Tebas notaði twitter í kvöld til að leggja áherslu á að Barcelona yrði sparkað út úr spænsku deildinni.

„Ef Spánn brotnar þá brotnar spænska deildin líka. Við skulum vona að svo fáránlega aðstæður komi ekki upp," sagði Javier Tebas á twitter.

Reyndar er Barcelona ekki eina félagið sem væri á leiðinni út því Espanyol er einnig frá Barcelona og þar með Katalóníu.

„Íþróttalögin eru skýr. Einu félögin utan Spánar sem mega taka þátt eru lið frá Andorra. La Liga verður ekki deild með katalónskum félögum verði Katalónía sjálfsstæð," sagði Javier Tebas við spænska blaðið AS í morgun.

Josep Bartomeu, forseti Barcelona, hefur verið harður á því að félagið haldi sínu hlutleysi í málinu.

Barcelona vann spænska meistaratitilinn í 23. sinn síðasta vor og er einnig ríkjandi Evrópumeistari. Það er ekki bara þátttaka liðsins í spænsku deildinni sem er í uppnámi verði félaginu sparkað út heldur einnig sæti liðsins í Meistaradeildinni.

Það bíða margir spenntir eftir niðurstöðu kosninganna á sunnudaginn kemur en þetta hræðslutaktík Javier Tebas er líkleg til að hafa áhrif á gang mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×