Körfubolti

Ekki er allt sem sýnist hjá kvennaliði Grindavíkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Whitney Frazier
Whitney Frazier Mynd/Youtube.com/Talking Tech
Grindavíkurkonur hafa unnið tvo flotta sigra í tveimur fyrstu leikjum sínum í Fyrirtækjabikar KKÍ og athygli hefur vakið að Stefanía Helga Ásmundsdóttir hefur verið stigahæsti leikmaður liðsins í báðum leikjum. Það er hinsvegar ekki allt sem sýnist.

Hin bandaríska Whitney Frazier hefur nefnilega spilað tvo fyrstu leiki sína á Íslandi undir fölsku flaggi eins og blaðamaður Grindavík.is skrifaði um á síðu sinni.

„Glöggir aðdáendur liðsins ráku sennilega upp stór augu þegar þeir rýndu í tölfræði leiksins en samkvæmt henni var gamla kempan Stefanía Ásmundsdóttir með magnaða endurkomu í lið Grindavíkur, stigahæst með 22 stig, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Býsna gott fyrir 35 ára gamlan leikmann sem hefur ekki leikið í efstu deild í nokkur ár," segir í greininni á Grindavík.is og þar kemur ennfremur fram:

„Blaðamaður Grindavík.is fór á stúfana og spurðist fyrir um málið. Stefanía, sem er einn af betri leikmönnum í sögu liðsins og efst í fjölmörgum tölfræðiþáttum, er því miður ekki að koma með "comeback". Í ljós kom að um einhverskonar villu í tölfræðigrunni kki.is er að ræða. Leikmaðurinn sem hlóð í þessa rosalegu tölfræðilínu er hin bandaríska Whitney Frazier sem mun væntanlega leika með liðinu í vetur."

Þessi grein á Grindavík.is var skrifuð eftir fyrsta leik Grindavíkur en í kvöld var fyrrnefnd Stefanía Helga Ásmundsdóttir mætt á ný í leik Þórs og Grindavíkur fyrir norðan. Að þessu sinni var hún með 22 stig, 16 fráköst, 7 stoðsendingar og 7 stolna bolta.

Meðaltöl Stefaníu í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins samkvæmt tölfræðigrunni KKÍ eru því 22,0 stig, 10,5 fráköst, 6,5 stoðsendingar og 5,0 stolnir boltar.

Hvort Whitney Frazier sé ekki komin með leikheimild eða hvort að hún ætli að taka upp nafn Stefaníu hér á landi er ekki vitað en það ætlar í það minnsta að ganga illa hjá henni að spila undir sínu rétta nafni. Á meðan bætir Stefanía við sig fullt af stigum, fráköstum, stoðsendingum og stolnum boltum og ferilskráin verður glæsilegri með hverjum leik Grindavíkurliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×