Grótta hefur titilvörnina á sigri Anton Ingi Leifsson skrifar 12. september 2015 17:54 Grótta gat leyft sér að fagna í dag. vísir/valli
Íslandsmeistarar Gróttu byrja titilvörnina á sigri í Olís-deild kvenna, en Grótta vann fimm marka sigur á ÍR í fyrstu umferð Olís-deildar kvenna. Grótta var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10, en þær unnu að lokum fimm marka sigur, 2-116. Unnur Ómarsdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir gerðu fimm mörk hvor, en Brynhildur Bergmann gerði sex fyrir ÍR. ÍBV vann Fram í stórleik umferðarinnar, 24-21, en leikið var í Safamýri. Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst hjá Fram með sjö mörk, en Drífa Þorvaldsdóttir gerði fimm fyrir gestina sem byrja vel undir stjórn Hrafnhildar Skúladóttur. FH og KA/Þór skildu jöfn, 15-15, í Kaplakrika í dag. Staðan í hálfleik var 9-7 FH í vil. Ingibjörg Pálmadóttir, Elín Anna Baldursdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir gerðu allar þrjú mörk hver fyrir FH, en Arna Kristín Einarsdóttir var markahæst hjá gestunum með fjögur mörk. Nýliðar Fjölnis gerðu sér lítið fyrir og lögðu HK að velli, 20-18, eftir að stðan hafi verið 12-8, HK í vil í hálfleik. Díana Kristín Sigmarsdóttir gerði níu mörk fyrir Fylki, en þær Emma Sardardóttir og Sóley Ívarsdóttir gerðu fimm mörk hvor fyrir HK. Afturelding steinlá fyrir Val í dag, en lokatölur urðu 26 marka sigur Vals; 40-14. Staðan í hálfleik var 23-10 fyrir Val. Telma Rut Frímannsdóttir var markahæst hjá heimamönnum með fjögur, en Kristín Guðmundsdóttir gerði fjórtán mörk fyrir Val. Selfoss vann Hauka 26-24 í síðasta leik dagsins, en Haukastúkur leiddu 14-10 í hálfleik. Ramune Pekarskyte er mætt aftur heim og gerði hún sex mörk fyrir Hauka sem og Jóna Sveinbjörg Halldórsdóttir. Carmen Palamariu gerði níu fyrir gestina og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sjö.
Olís-deild kvenna Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sjá meira