Fótbolti

Messi með tvennu í öruggum sigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmunsson skrifar
Messi skoraði tvö, átti stoðsendingu og klúðraði víti.
Messi skoraði tvö, átti stoðsendingu og klúðraði víti. vísir/getty
Barcelona er með fullt hús stiga á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-1 sigur á Levante á heimavelli í kvöld.

Lionel Messi var venju samkvæmt í aðalhlutverki hjá Börsungum en Argentínumaðurinn lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Marc Bartra og skoraði svo sjálfur þriðja mark og fjórða mark Barcelona.

Bartra kom Börsungum yfir á 50. mínútu og aðeins sex mínútum síðar bætti Neymar öðru marki við.

Messi jók muninn í 3-0 á 61. mínútu og 14 mínútum síðar fiskaði hann aðra vítaspyrnu. Messi fór sjálfur á punktinum en skaut yfir. Í millitíðinni minnkaði Casadesús muninn fyrir Levante eftir slæm mistök hjá Marc-André ter Stegen í marki Barcelona.

Það var svo Messi sem negldi síðata naglann í kistu Levante þegar hann skoraði fjórða markið á lokamínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×