Fótbolti

Jón Dað lagði upp sigurmark Viking

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Daði faganr marki með Viking.
Jón Daði faganr marki með Viking. vísir/getty
Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Viking sem skaust upp í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Bodø/Glimt.

Fitim Azemi kom Bodø/Glimt yfir í upphafi síðari hálfleiks, en Andre Danielsen jafnaði metin á 63. mínútu úr vítaspyrnu.

Vidar Nisja reyndist hetja Viking, en hann skoraði sigurmarkið á 88. mínútu leiksins eftir undirbúning Jóns Daða. Markið skaut Viking í þriðja sætið.

Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson spiluðu báðir allan leikinn fyrir Viking, en Steinþór Freyr Þorsteinsson kom inná sem varamaður einni mínútu fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×