Lífið

Sumarlífið: Ósk lúbarði Davíð og Pulla er á lífi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sumarlífið heldur áfram að fjalla um stærstu útihátíð ársins um Verslunarmannahelgina og er nú komið að öðrum þætti frá Þjóðhátíð.

Davíð Arnar Oddgeirsson, einn af umsjónamönnum þáttarins, var í essinu sínu í Eyjunni og tók gesti hátíðarinnar tali.

„Það fyrsta sem frænka mín spurði mig út í var hvort ég hefði í alvörunni étið Pullu,“ segir Auðunn Blöndal, fjölmiðlamaður, og svaraði frænku sinni: „Nei, þetta er bara djók.“

Þeir félagar í FM95BLÖ gerðu nýtt þjóðhátíðarlag á  dögunum og fluttu lagið fyrir framan allan Brekkuna í Eyjum.

Myndband við lagið var frumsýnt á Vísi. Sjá einnig:Frumsýning á Þjóðhátíðarlagi FM95BLÖ

„Auddi hefur reyndar aldrei verið í team Pullu og ef við hefðum lent í þessu í alvörunni og búnir að vera upp á fjalli í þrjá til fjóra daga, þá hefði Auddi borðað Pullu,“ segir Steindi.

„Hún er bara svo uppáþrengjandi og skrítin. Án gríns hún kemur stundum og mígur bara á mann, það er eitthvað að bakinu hennar og því heldur hún ekki hægðum. Svo er hún orðin ógeðslega góð með sig eftir video-ið," segir Auddi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.