Fótbolti

Sjáðu glæsimark Rafinha í lýsingu Gumma Ben

Anton Ingi Leifsson skrifar
Manchester United vann Barcelona 3-1 á æfingarmóti sem fer fram í þremur heimsálfum um þessar mundir, en leikur United og Barcelona fór fram í Bandaríkjunum.

Rooney kom United yfir eftir hornspyrnu á áttundu mínútu leiksins, en leikmenn Barcelona vildu fá dæmda bakhrindingu á Rooney.

Staðan var 1-0 í hálfleik og Jesse Lingard tvöfaldaði forystu United með marki eftir laglega sókn. 2-0 eftir 65 mínútna leik.

Rafinha minnkaði muninn fyrir Barcelona með laglegu skoti á 90. mínútu, en Adnan Januzaj svaraði í næstu sókn og lokatölur 3-1.

Mörkin í lýsingu Guðmundar Benediktssonar má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×