Fótbolti

Casilla til Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kiko Casilla hefur varið mark Espanyol undanfarin ár.
Kiko Casilla hefur varið mark Espanyol undanfarin ár. vísir/getty
Real Madrid hefur komist að samkomulagi við Espanyol um kaup á markverðinum Kiko Casilla.

Kaupverðið er sagt vera sex milljónir evra en Casilla skrifaði undir fimm ára samning við Real Madrid. Casilla, sem er 28 ára, er því á heimleið en hann er uppalinn hjá Real Madrid þótt hann hafi aldrei leikið með aðalliði félagsins.

Real Madrid hefur verið í markvarðaleit eftir að Iker Casillas var seldur til Porto eftir að hafa leikið með spænska liðinu allan sinn feril.

David de Gea, markvörður Manchester United, hefur verið þrátlátlega orðaður við Real Madrid undanfarna mánuði en óvíst er hvort eða hvenær hann fer aftur til Spánar.

Þangað til annað kemur í ljós munu því Casilla og Keylor Navas, landsliðsmarkvörður Kosta Ríka, berjast um markvarðastöðuna hjá Real Madrid næsta vetur.


Tengdar fréttir

Benitez: Ramos fer hvergi

Þrátt fyrir meintan vilja spænska varnarmannsins að fara til Manchester United verður hann áfram í spænsku höfuðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×