Útfærslan gekk ekki upp Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júlí 2015 07:00 Aníta náði ekki sínum besta tíma í Eskilstuna. vísir/daníel
Anítu Hinriksdóttur, hlaupakonu úr ÍR, tókst ekki að verja Evrópumeistaratitilinn í 800 metra hlaupi sem hún vann fyrir tveimur árum á EM U-19 ára í Eskilstuna í Svíþjóð um helgina. Aníta komst örugglega í úrslit í 800 metra hlaupinu en hún var með besta tíma allra keppenda í undanrásunum; 2:05,01 mínútur. Aníta byrjaði úrslitahlaupið ágætlega. Hún leiddi eftir fyrri hringinn á millitímanum 1:00,64 mínútum og var enn með forystu eftir 600 metra. En Aníta gaf eftir á lokasprettinum og missti Renée Eykens frá Belgíu og Söruh Schmidt frá Þýskalandi fram úr sér. Aníta endaði að lokum í 3. sæti en hún kom í mark á tímanum 2:05,04 mínútum sem er talsvert frá hennar besta tíma (2:00,49 mínútur). Bronsið var því niðurstaðan og önnur verðlaun Anítu á EM U-19 ára staðreynd.Niðurstaðan viss vonbrigði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, segir það smá vonbrigði að hafa ekki náð að verja titilinn sem Aníta vann svo glæsilega fyrir tveimur árum. „Auðvitað eru bronsverðlaun mikil viðurkenning og allt það en það er engin launung að það eru viss vonbrigði að hafa ekki náð að vinna hlaupið,“ sagði Gunnar í samtali við Fréttablaðið skömmu eftir úrslitahlaupið. Aðspurður hvort úrslitahlaupið í ár hafi verið sterkara en fyrir tveimur árum hafði Gunnar þetta að segja: „Það var kannski aðeins meiri breidd í þessu hlaupi. Þessi sem vann hlaupið (Renée Eykens) vann einnig mótið í Mannheim um daginn og við vissum að Aníta væri að etja kappi við stelpur sem eru sterkar í taktísku hlaupi eins og úrslitahlaupið endaði með að vera.“ Mótið í Mannheim (Bauhaus Junioren Gala) sem Gunnar vísar til fór fram fyrir þremur vikum. Þar náði Aníta mjög góðu hlaupi og kom í mark á 2:02,57 mínútum, aðeins tveimur hundraðshlutum úr sekúndu á eftir Eykens sem hafði svo aftur betur gegn Anítu á EM um helgina.EM í Eskilstuna var væntanlega síðasta mót Anítu í unglingaflokki.vísir/daníelVildi keyra upp hraðann Að sögn Gunnars var markmiðið á laugardaginn að hlaupa hratt hlaup ef svo má að orði komast: „Það var talsverður vindur og í þannig aðstæðum þarf að taka ákvörðun hvort á að hlaupa á tiltölulega rólegum hraða og eiga nóg eftir fyrir endasprettinn eða hlaupa hratt hlaup,“ sagði Gunnar, en Eykens og Schmidt völdu fyrri kostinn. „Anítu langaði í hratt hlaup og okkur fannst hún vera tilbúin í það, bæði eftir mótið í Mannheim, æfingar þar á eftir og hlaupið í undanrásunum,“ bætti Gunnar við. Þótt Aníta hafi verið fyrst eftir fyrri hringinn var millitíminn ekki eins og góður og vanalega og það gerði keppinautum hennar auðveldara fyrir. „Hún ætlaði sér að hlaupa fyrri hringinn mjög hratt og láta hinar þurfa að ákveða hvort þær ætluðu að fylgja henni á þeim hraða, sem þær hefðu átt erfitt með því þær eiga ekki eins góðan tíma,“ sagði Gunnar og bætti við: „Mér fannst hún aðeins hikandi milli 200 og 400 metranna og hún keyrði ekki eins og við vorum búin að tala um, eflaust út af vindinum. Það þýddi að hinar náðu að hlaupa fyrri hringinn á tíma sem þær ráða vel við. Þannig að við verðum að viðurkenna að útfærslan á hlaupinu gekk ekki upp.“ Gunnar segir ekki hægt að bera úrslitahlaupið í Eskilstuna saman við úrslitahlaupið á EM innanhúss í Prag í mars en þar keppti Aníta á móti fullorðnum keppendum. Hún hafi hlaupið mun betur þá og var auk þess að etja kappi við miklu sterkari andstæðinga. Gunnar segir frekar hægt að líkja hlaupinu í fyrradag við úrslitahlaupið á Smáþjóðaleikunum í síðasta mánuði, þar sem Aníta endaði í 2. sæti eftir að hafa verið með forystuna lengi framan af.Erfiðara að verja titil Aníta átti einstakt ár 2013 þegar hún vann bæði til gullverðlauna á HM og EM ungmenna og var auk þess kjörin vonarstjarna ársins. Gunnar segir alltaf erfitt að fylgja eftir slíkum árangri. „Hún kom auðvitað gríðarlega mikið á óvart fyrir tveimur árum. En það er erfiðara að verja titil en að ná honum óvænt eins og hún gerði 2013. Það gekk allt upp þá en það reynir kannski fyrst á fólk þegar það gengur ekki allt upp,“ sagði Gunnar, sem hefur fulla trú á að Aníta komi sterkari til baka. Aníta, sem er 19 ára, er á síðasta ári í unglingaflokki en EM í Eskilstuna var líklega hennar síðasta mót í þeim flokki. En hvað tekur nú við hjá þessari efnilegu íþróttakonu? „Nú förum við bara að leita að mótum, ekkert alltof sterkum en það þarf þó að vera með öflugum keppinautum. Og þá erum við að tala um keppendur sem hafa hlaupið á undir tveimur mínútum,“ sagði Gunnar en Aníta verður að sjálfsögðu í eldlínunni um næstu helgi þegar Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Enski boltinn Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Íslenski boltinn Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Fótbolti Neymar fór grátandi af velli Fótbolti Aubameyang syrgir fallinn félaga Fótbolti Dagskráin í dag: Hvað gerir Man United? Sport Veltu fyrir sér hvort það hafi verið rétt að taka Rashford af velli Fótbolti Rekinn út af eftir 36 sekúndur Handbolti Fleiri fréttir Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Rekinn út af eftir 36 sekúndur Neymar fór grátandi af velli Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn „Ég er alltaf stressuð“ Tevez vill að Ronaldo og Messi spili saman í kveðjuleiknum hans Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Óvenjuleg taktík Real Madrid á móti Arsenal fær falleinkunn frá Ferdinand Vonast til að gera íslensku þjóðina stolta Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Sjáðu Arsenal slá út Real Madrid, vítið sem dæmt og vítið sem var dæmt af Olga ætlar ekki í slag við Willum Veltu fyrir sér hvort það hafi verið rétt að taka Rashford af velli Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ Dagskráin í dag: Hvað gerir Man United? Aubameyang syrgir fallinn félaga „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ „Þetta var skrýtinn leikur“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ Newcastle upp í þriðja sætið „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Tvö mörk á þremur mínútum sendu Inter í undanúrslit Sjá meira