Bíó og sjónvarp

Mynd um yngri ár Han Solo í bígerð

Samúel Karl Ólason skrifar
Chewbacca og Han Solo í Force Awakens.
Chewbacca og Han Solo í Force Awakens.
Disney ætlar að gera kvikmynd um yngri ár Han Solo. Harrison Ford lék hann eftirminnilega í gömlu Star Wars myndunum og mun honum einnig bregða fyrir í nýjustu myndinni The Force Awakens. Þeir Christopher Miller og Phil Lord munu leikstýra myndinni, en þeir gerðu hina gífurlega vinsælu Lego mynd.

Áætlað er að frumsýna myndina þann 25. maí 2018. Ekki liggur fyrir hverjir munu leika í myndinni.

Á vef Hollywood Reporter segir að feðgarnir Lawrence og Jon Kasdan muni skrifa handrit myndarinnar, en Lawrence er einn þeirra sem skrifaði handrit The Empire Strikes Backo og Return of the Jedi. Hann kom einnig að The Force Awakens.

Auk myndarinnar um Han Solo er einnig talið að unnið sé að mynd um uppruna Boba Fett, en Hollywood Reporter segir að enn sé leitað að leikstjóra þeirrar myndar. Auk þeirra vinnur Disney einnig að myndinni Rogue One. Hún fjallar um sveit uppreisnarmanna sem ætla sér að stela teikningunum af fyrsta Helstirninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.