Körfubolti

Hallveig aftur á Hlíðarenda

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hallveig í leik með Keflavík.
Hallveig í leik með Keflavík. vísir/vilhelm
Hallveig Jónsdóttir hefur samið við körfuknattleiksdeild Vals og mun leika með liðinu í Domino's deild kvenna á næsta tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals.

Hallveig, sem verður tvítug í næsta mánuði, lék með Keflavík á síðasta tímabili.

Hún skoraði 4,8 stig og tók 1,6 fráköst að meðaltali í leik með Keflavík í vetur en liðið fór alla leið í lokaúrslit þar sem það beið lægri hlut fyrir Snæfelli.

Hallveig lék áður með Val á árunum 2012-2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×