Fótbolti

Arftaki Dani Alves fundinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vidal vann Evrópudeildina með Sevilla í vor.
Vidal vann Evrópudeildina með Sevilla í vor. vísir/getty
Nýkrýndir Evrópumeistarar Barcelona hafa fest kaup á varnarmanninum Aleix Vidal frá Sevilla. Talið er að kaupverðið sé í kringum 16 milljónir punda.

Vidal, sem er 25 ára, gerði fimm ára samning við Barcelona. Hann má þó ekki byrja að spila með liðinu fyrr en í janúar á næsta ári vegna félagaskiptabannsins sem Barcelona var sett í fyrir að brjóta reglur FIFA um félagaskipti leikmanna undir 18 ára aldri.

Vidal er Katalóni og hóf ferilinn með Espanyol. Hann sló í gegn hjá Almería og samdi svo við Sevilla fyrir síðasta tímabil.

Vidal lék 47 leiki með Sevilla á tímabilinu en liðið vann Evrópudeildina eftir sigur á Dnipro Dnipropretrovsk í úrslitleik.

Vidal er ætlað að fylla skarð Dani Alves í hægri bakvarðarstöðunni en Brasilíumaðurinn er að öllum líkindum á leið frá Barcelona.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×