Fótbolti

Morata skaut Juventus áfram gegn sínu gamla liði | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna jöfnunarmark Morata.
Leikmenn Juventus fagna jöfnunarmark Morata. vísir/getty
Það verður Juventus sem mætir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Ólympíuleikvanginum í Berlín 6. júní næstkomandi.

Juventus gerði 1-1 jafntefli við Real Madrid í seinni leik liðanna í undanúrslitunum á Santiago Bernabeu í kvöld og fór áfram, samanlagt 3-2.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Það er því ljóst að Real Madrid ver ekki Evrópumeistaratitilinn sem liðið vann í fyrra en engu liði hefur tekist að verja titilinn síðan Meistaradeildin var sett á stofn tímabilið 1992-93.

Þetta er í áttunda sinn sem Juventus kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en síðast þegar það gerðist (2003) sló liðið einmitt Real Madrid út í undanúrslitunum.

Evrópumeistararnir voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og settu mikla pressu á vörn Juventus.

Real Madrid náði forystunni á 23. mínútu þegar Cristiano Ronaldo skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var á Giorgio Chiellini fyrir brot á James Rodríguez.

Þetta var tíunda mark Ronaldos í Meistaradeildinni í ár og hann varð því fyrsti leikmaður sögu keppninnar til að skora 10 mörk eða fleiri fjögur tímabil í röð.

Þetta var jafnframt mark númer 307 sem Ronaldo skorar fyrir Real Madrid og hann jafnaði þar með Alfredo Di Stefáno á listanum yfir markahæstu leikmenn í sögu félagsins.

Þetta var ekki kvöldið hans Gareth Bale.vísir/getty
Real Madrid leiddi í hálfleik en Juventus-menn mættu grimmari til leiks í seinni hálfleik.

Á 57. mínútu jafnaði svo Álvaro Morata metin í 1-1 gegn sínum gömlu félögum en hann skoraði einnig í fyrri leiknum.

Madrídingar bættu í sóknina eftir þetta enda þurftu þeir að vinna leikinn til að komast áfram. Þeir sóttu og sóttu og Gareth Bale fór illa með nokkur góð tækifæri við takmarkaða hrifningu stuðningsmanna Real Madrid.

Claudio Marchisio fékk dauðafæri til að koma Juventus yfir á 70. mínútu en Iker Casillas varði skot hans.

Leikmenn Real Madrid reyndu hvað þeir gátu en fundu ekki leiðina í gegnum þétta vörn Juventus.

Svo fór að liðin skildu jöfn, 1-1, og Juventus er því komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín 6. júní næstkomandi.

Það verður því ekkert af Spánarslag Real Madrid og Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en Madrídingar þurfa líklega að sætta sig við titlalaust tímabil í ár.

Ronaldo 1-0 Morata 1-1

Tengdar fréttir

Ramos: Ég spilaði illa

Varnarmaðurinn var á miðjunni gegn Juventus og átti ekki góðan dag í Meistaradeildartapi.

Tévez tryggði Juve sigur á Real Madrid | Sjáið mörkin

Ítölsku meistararnir í Juventus unnu 2-1 sigur á Evrópumeisturum Real Madrid fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en seinni leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid í næstu viku.

Keane: Bale mætti ekki til leiks

Roy Keane var harðorður í garð Gareths Bale eftir tap Real Madrid fyrir Juventus í Meistaradeildinni í gær.

Buffon gerði grín að Sir Alex Ferguson

Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, gerir grín að þeirri ákvörðun Sir Alex Ferguson að leyfa franska miðjumanninum Paul Pogba að yfirgefa Manchester United á sínum tíma.

Evra: Tevez er með United-blóð eins og ég

Patrice Evra, bakvörður Juventus, var ánægður eftir 2-1 sigur liðsins á Real Madrid í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×