Fótbolti

Suárez mætir Evra og Chiellini í úrslitaleik Meistaradeildarinnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Suárez beitti Evra kynþáttaníði í leik Manchester United og Liverpool í október 2011.
Suárez beitti Evra kynþáttaníði í leik Manchester United og Liverpool í október 2011. vísir/getty
Það verða Barcelona og Juventus sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Ólympíuleikvanginum í Berlín 6. júní næstkomandi.

Þetta var ljóst eftir 1-1 jafntefli Juventus og Real Madrid á Santiago Bernabeu í kvöld. Ítölsku meistararnir fóru áfram, samanlagt 3-2, en þetta er í fyrsta sinn síðan 2003 sem Juventus kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þá tapaði liðið fyrir AC Milan í vítaspyrnukeppni.

Barcelona sló Bayern München út, samanlagt 5-3, og komust þar með í úrslitaleikinn í áttunda sinn í sögu félagsins.

Í úrslitaleiknum mætir Luis Suárez, framherji Barcelona, því tveimur fornum fjendum sínum; Patrice Evra og Giorgio Chiellini sem báðir leika með Juventus.

Í desember 2011 var Suárez dæmdur í átta leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Evra í leik Liverpool og Manchester United 15. október sama ár. Fyrir seinni leik liðanna á þessari leiktíð neitaði Suárez svo að taka í hönd Evra.

Síðasta sumar beit Suárez, eins og frægt er, Chiellini í öxlina í leik Úrúgvæ og Ítalíu á HM í Brasilíu. Þetta var í þriðja skiptið sem Suárez gerðist sekur um að bíta mótherja á vellinum.

Framherjinn fékk í kjölfarið níu mánaða bann frá landsliðsfótbolta. Suárez bað Chiellini afsökunar á bitinu og sá síðarnefndi talaði í kjölfarið um að stytta ætti bann Úrúgvæans.

Það verður því athyglisvert að sjá hvað gerist í Berlín laugardaginn 6. júní, hvort Suárez haldi sig á mottunni og láti skapið ekki hlaupa með sig í gönur í návist þessara tveggja fornu fjenda.

Suárez heldur um framtennurnar eftir að hafa sökkt þeim í öxlina á Chiellini.vísir/getty

Tengdar fréttir

Suárez má ekki æfa á meðan banninu stendur

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA staðfesti í dag að Luis Suárez væri óheimilt að taka þátt í æfingum með félagsliði sínu á meðan hann tekur út fjögurra mánaða keppnisbann.

Gerrard pressar á Suarez að taka í höndina á Evra

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, vill að Luis Suarez taki í höndina á Patrice Evra fyrir stórleik Liverpool og Manchester United í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Sport 2 HD en á undan leiknum er hálftíma upphitunarþáttur með Guðmundi Benediktssyni.

Luis Suárez: Ég kallaði Evra bara það sem liðsfélagarnir kalla hann

Liverpool-maðurinn Luis Suárez tjáði sig um ásakanirnar á hendur honum við komuna til Úrúgvæ þar sem hann er að fara að spila með landsliðinu. Manchester United maðurinn Patrice Evra sakaði Suárez um kynþáttafordóma gagnvart sér í leik Liverpool og Manchester United 15.október síðastliðinn.

Suarez: Ekki allt sem sýnist

Luis Suarez segist vera vonsvikinn eftir tap sinna manna í Liverpool gegn Manchester United í dag. Úrslitin hafa þó fallið í skuggann á máli hans og Patrice Evra.

Liverpool vill Evra í bann séu ásakanir hans falskar

Liverpool ætlar að standa við bakið á Úrúgvæmanninum Luis Suárez sem hefur hafnað algjörlega þeim fréttum að hann hafi kallað Patrice Evra, fyrirliða Manchester United, niggara í leik liðanna á laugardaginn.

FIFA hafnaði áfrýjun Suárez

Alþjóða knattspyrnusambandið hafnaði áfrýjun Luis Suárez í dag en leikmaðurinn var dæmdur í fjögurra mánaða bann fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini á Heimsmeistaramótinu í sumar.

Suarez strunsaði framhjá Evra

Luis Suarez tók ekki í hönd Patrice Evra þegar leikmenn Manchester United og Liverpool heilsuðust fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Suárez þarf að leita sér aðstoðar

Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, telur að Luis Suárez þurfi að leita sér aðstoðar eftir að hann beit leikmann í þriðja sinn á ferlinum í leik Úrúgvæ og Ítalíu í gær.

Suarez segir það verstu stundina á ferlinum þegar hann beit Chiellini

Luis Suarez, leikmaður Barcelona og fyrrum leikmaður Liverpool, tjáði sig um ýmislegt í viðtali við spænska íþróttablaðið AS. Suarez skoraði tvö mörk í síðasta leik Barcelona og virðist vera búinn að koma sér vel fyrir hjá spænska stórliðinu.

Dalglish: Allir í Liverpool standa algjörlega við bakið á Suarez

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sagði það á blaðamannfundi fyrir Norwich-leikinn á morgun að allir hjá Liverpool standi við bakið á Úrúgvæmanninum Luis Suarez. Patrice Evra sakaði Suarez um kynþáttarníð í leik Liverpool og Manchester United um síðustu helgi.

Suarez fékk átta leikja bann

Enska knattspyrnusambandið hefur dæmt Luis Suarez, leikmann Liverpool, í átta leikja bann fyrir að hafa verið með kynþáttaníð í garð Patrice Evra, leikmann Manchester United, í leik liðanna fyrr í vetur.

Suárez mun kæra niðurstöðu FIFA

Lögmaður Luis Suárez staðfesti í dag að skjólstæðingur sinn myndi kæra niðurstöðu FIFA en knattspyrnusambandið staðfesti að Suárez þyrfti að taka út fjögurra mánaða keppnisbann í gær.

Evra þarf að jafna sig eftir Liverpool-leikinn

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur gefið Patrice Evra frí frá leiknum gegn Ajax í Evrópudeildinni á morgun. Hann segir að það hafi verið nauðsynlegt að hvíla Evra eftir leikinn gegn Liverpool um síðustu helgi.

Sunnudagsmessan: Umræða um 8 leikja bannið hjá Suarez

Það hefur ekki farið framhjá neinum að Luis Suarez framherji Liverpool var á dögunum úrskurðaður í 8 leikja keppnisbann. Suarez á að hafa sagt niðrandi orð um litarhátt Patrice Evra leikmann Manchester United og enska knattspyrnusambandið sýndi mikla hörku með dómi sínum. Málið var til umræðu í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport s.l. fimmtudag og má sjá það myndbrot með því að smella á hnappinn hér yfir ofan.

Dalglish: Tók vitlaust á Suarez-málinu

Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, segist hafa tekið máli Luis Suarez röngum höndum. Suarez var fyrr á tímabilinu dæmdur í átta leikja keppnisbann fyrir að vera með kynþáttníð í garð Patrice Evra.

Evra segir að Suarez hafi kallað sig niggara

Enska knattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á því hvort Luis Suarez, framherji Liverpool, hafi verið með kynþáttafordóma í garð hins hörundsdökka bakvarðar Man. Utd, Patrice Evra, í leik liðanna á Anfield í dag.

Ferguson: Suarez er Liverpool til skammar

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði eftir 2-1 sigur sinna manna á Liverpool í dag að Luis Suarez hefði verið sínu félagi til skammar og að hann ætti ekki að fá að spila fyrir liðið aftur.

Rooney með tvö í sigri United á Liverpool

Manchester United vann sanngjarnan 2-1 sigur á Liverpool í stórslag helgarinar í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney skoraði bæði mörk United í upphafi seinni hálfleiks.

Ferguson: Dalglish missti starfið útaf Suarez málinu

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Kenny Dalglish hafi misst starf sitt sem knattspyrnustjóri hjá Liverpool vegna þess að hann hafi tekið ranga ákvörðun í "Suarez-Evra“ málinu á síðustu leiktíð.

Sunnudagsmessan: Sagan endalausa af Suárez og Evra

Sagan endalausa um samskipti þeirra Luis Suárez framherja Liverpool og Patrice Evra varnarmanns Manchester United var til umræðu í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason fóru yfir stöðu mála með Þorvaldi Örlygssyni þjálfara Fram sem var gestur "Messunnar“ að þessu sinni.

Chiellini olli mér vonbrigðum

Diego Lugano, fyrirliði Úrúgvæ fannst Giorgio Chiellini gera of mikið úr því þegar Luis Suárez beit hann í leik Ítalíu og Úrúgvæ

Evra: Suarez sagðist ekki tala við svertingja

Enska knattspyrnusambandið hefur opinberað rannsóknargögn sem leiddu til þess að Luis Suarez, leikmaður Liverpool, var dæmdur í átta leikja bann af sambandinu.

Suarez kærður fyrir kynþáttafordóma

Enska knattspyrnusambandið hefur kært Luis Suarez, framherja Liverpool, fyrir kynþáttafordóma í garð Patrice Evra, leikmanns Man. Utd.

Chiellini: Suarez fékk of harða refsingu

Giorgio Chiellini, ítalski varnarmaðurinn og fórnarlamb bitsins hjá Luis Suarez, er á því að refsing Luis Suarez sé of hörð en þetta kemur fram í yfirlýsingu inn á heimasíðunni Ítalans.

Suarez dæmdur í fjögurra mánaða bann

Luis Suarez var dæmdur í fjögurra mánaða bann frá öllum keppnum fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ á mánudaginn. Bannið nær til félags- og landsliðs Suárez.

Menningarlegur misskilningur á milli Evra og Suarez?

Mögulegt er að einfaldur misskilningur á milli Patrice Evra og Luis Suarez hafi orðið til þess að sá fyrrnefndi sakaði þann síðarnefnda um kynþáttaníð eftir leik Liverpool og Manchester United fyrr í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×